Skoðun

Blóðmeramálið að kosninga­máli

Árni Stefán Árnason skrifar

Ný myndbrot, frá York Ditfurth og samstarfskonu hans Sabrinu hjá AWF-TSB, samstarfsfólki mínu við gerð fyrstu heimildamyndarinnar um blóðmeraníðið sýnir endurtekið og grimmt dýraníð.

Ég er upphafsmaður íslenska blóðmeramálsins. Það er óumdeilt. Ég lagði hálfs árs vinnu í að skrifa fyrstu grein Íslandssögunnar um blóðmeraníðið á Íslandi. Það var lögfræðilega ádeila um málið. Réttarríkið á Íslandi er hins vegar á slíkum brauðfótum að engin árangur hefur náðst í málinu. Mál er að linni og hvalveiðar og blóðmeraiðnaðurinn verði bannað.

Greinin leiddi af sér rannsókn York Dirtfurth og Sabrinu samstarfskonu hans. Framleidd hafa verið tvö myndbönd, sem sýna ískyggilegt dýraníð. Það vakti ekki samúð stjórnvalda.

Matvælastofnun hummaði það fram af sér með fyrrverandi tusku Framsóknarflokksins, yfirdýralækninn Sigurborgu Daðadóttur, fálkaorðuhafa fyrir dýravernd, að kæra málið til lögreglu. Þá loksins þar var kært vísaði lögreglan því frá. MAST sór þar að auki af sér allir sakir fyrir meint brot á lögum um velferð dýra þó að eftirlits og héraðsdýralæknar hafi augljósa litið undan og leyft blóðmerabændum að fremja hrottalegt dýraníð.

Forstjóri Mast Hrönn Ólína Jörundsdóttir er ábyrg fyrir eftirliti með velferð dýra á Íslandi. Hrönn fær rassskellingu, fyrr á þessu ári, frá Ríkisendurskoðanda, almennt um eftirlit með dýravelferð. Ríkisendurskoðandi hafði ekki kjark til að fjalla um blóðmeramálið með ótækum rökum að mínu mati.

Fyrir liggur að aðeins einn flokkur á Alþingi hefur tekið málið af einhverju viti í arma sína undir forystu oddvita þess flokks, frú Ingu Sæland.

Frú Inga hefur vaxið í málflutningi sínum, með réttu, fyrir þessari kosningar. Fylgisaukning staðfestir það að hún og flokkur hennar vilja vinna fyrir þá allra smæstu. - Þannig eru dýrin oft skilgreind.

Kjósendur eru loksins að átta sig á því.

Ég reikna með að einhverjir flokkar nýti sér nú samúð með blóðmerum og föllnum folöldum þeirra og taki málið upp sem kosningamál. Ég reikna með að einhverjir frambjóðendur átti sig á því að MAST batteríið er misheppnuð og gagnslaus stofnun í dýravernd og geri það að tillögu sinni að stofnunin verði stokkuð upp og dýravernd komið annað. Með hvaða hætti hef ég líka margstungið upp á og býð fram krafta mína í slíkri uppstokkun. Fáir hafa verið með nefið meira niðri í dýravernd undanfarinn áratug, með skrifum og í verkum.

Það er komin tími til að gera dýravernd að kosningamáli, engin hefur þorað hingað til þó ég hafi stungið upp á því fyrir amk þrennar þingkosningar.

Nú vil ég dýravernd upp á yfirborðið, þremur vikum fyrir kosningar og þó miklu fyrr hefði verið.

Blóðmerar og fallin folöld þeirra - fyrsta grein Íslandssögunar um dýraníðið í blóðmerahaldi á Íslandi.

Höfundur er lögfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Konur hlusta á konur og karla, karlar hlusta á karla

Ásta Björg Björgvinsdóttir,Elíza Geirsdóttir Newman,Helga Ragnarsdóttir,Katla Vigdís Vernharðsdóttir,Lára Rúnarsdóttir,Lilja Sól Helgadóttir,Sóley Stefánsdóttir,Steinunn Camilla Stones skrifar

Sjá meira


×