Lærðu allt um kokteila í Kokteilaskólanum Kokteilaskólinn 21. október 2024 14:05 „Við erum auðvitað fyrst og fremst að kenna venjulegu fólki að búa til vinsæla kokteila með lítilli fyrirhöfn og hafa þetta um leið svolítið skemmtilegt," segir Ivan Svanur Corvasce, stofnandi Kokteilaskólans. Kokteilaskólinn hefur slegið í gegn síðan hann var stofnaður fyrir fjórum árum. Þar læra gestir að búa til vinsæla kokteila í góðum félagsskap og í léttri og skemmtilegri stemningu. Gjafabréfin í Kokteilaskólann hafa lengi verið vinsæl gjöf fyrir ólík tilefni og í næstu viku hefst skráning í jóla Kokteilaskólann sem sló í gegn á síðasta ári. „
Við bjóðum upp á eina kokteilanámskeiðið þar sem hver þátttakandi gerir sína eigin kokteila undir leiðsögn kokteilameistara,“ segir Ivan Svanur Corvasce stofnandi Kokteilaskólans og einn fimm kennara við skólann. Auk hans kenna þeir Teitur Schiöth, Daníel Jón, Terry Devos og Bjartur Daly en allir fimm hafa verið í fararbroddi íslenskrar kokteilamenningar undanfarin ár. „Í byrjun hélt ég að við myndum halda kannski 3-4 námskeið í mesta lagi en þá grunaði mig ekki hversu vinsælt þau gætu orðið. Við höfum verið með námskeið í hverri einustu viku núna í meira en fjögur ár.“ Hann segir alltaf ríkja mjög létta og skemmtilega stemningu á þessum námskeiðum. „En um leið kemur það mörgum gestum okkar skemmtilega á óvart hvað umgjörðin er fagmannleg og allt er vel skipulagt. Við erum auðvitað fyrst og fremst að kenna venjulegu fólki að búa til vinsæla kokteila með lítilli fyrirhöfn og hafa þetta um leið svolítið skemmtilegt. Öll hráefni og áhöld verða á staðnum og það eina sem þarf að gera er að mæta og vera tilbúin í góða kvöldstund.“ Vina- og fyrirtækjahópar er duglegir að mæta Á hverjum fimmtudegi er farið í gerð þriggja spennandi kokteila og um leið er farið yfir ýmsan fróðleik tengt hráefnum og fræðst á skemmtilegan hátt um undraverðan heim kokteila. „Þessi námskeið eru haldin alla fimmtudaga kl. 19 í húsnæði Spritz Venue, sem var opnaður fyrir þremur árum sérstaklega til að hýsa Kokteilaskólann og anna eftirspurn. Spritz Venue er staðsett við Rauðarárstíg 27 í miðbæ Reykjavíkur. Það eru opnu námskeiðin okkar sem hver sem er getur bókað sig á í gegnum heimasíðuna okkar, Kokteilaskólinn.is." Vina- og fyrirtækjahópar eru líka velkomnir en ef hópurinn inniheldur fleiri en tólf manns er boðið upp á einkanámskeið. „Það er stöðugt streymi af fyrirtækjahópum hjá okkur en hvað er betra en að hrista í kokteila og hrista upp í hópnum í leiðinni?" Einkahópar geta líka bætt við matarveitingum sem hægt er að njóta með ljúffengum kokteilum en núna um jólin verður boðið upp á jóla pinnamat í samstarfi við Nomy veitingar. „Á einkanámskeiðum er hægt að velja um þrjú mismunandi prógrömm en það nýjasta hjá okkur er Mojito námskeið sem hefur einnig slegið í gegn!,“ segir Ivan. Bókanir í jóla Kokteilaskólann hefjast í næstu viku, 24. október. Í næstu viku hefjast bókanir fyrir jóla Kokteilskólann en á síðasta ári seldust öll námskeiðin upp á skömmum tíma. „Jóla námskeiðin hefjast 14. nóvember þegar stutt er í aðventuna. Skólinn er staðsettur í miðbænum og því tilvalið að tvinna saman námskeiði hjá okkur og jólatónleikum eða heimsókn í miðbæinn sem verður farinn að lifna við með fallegum jólaskreytingum á þessum tíma. Fyrir einkahópa sem mæta til okkar þá getum við boðið upp á jóla pinnamat með kokteilunum þannig að þetta verður algjör veisla.“ Ivan hvetur áhugasama til að fara inn á vef Kokteilaskólans og skrá sig á póstlistann. „Þannig færðu tölvupóst þegar miðasalan hefst og missir ekki af neinu. Þetta verða a.m.k. 5-6 námskeið en líklegast munum við bæta nokkrum dagsetningum við.“ Gjafakortin hafa slegið í gegn í jólagjöf Gjafakortin í Kokteilaskólann hafa slegið í gegn sem gjafir fyrir ýmis tilefni. „Gjafarbréfin koma í fallegum umbúðum með vaxinnsigli Kokteilaskólann. Bréfin gilda á öll opin námskeið, bæði þessi hefðbundnu, en líka á þemanámskeiðin okkar sem geta verið allskonar.“ Utan þess að halda vinsæl námskeið selur Kokteilaskólinn líka baráhöld, hráefni og bækur sem tengjast kokteilagerð. „Í dag er Kokteilaskólinn einnig netverslun sem selur slíkar vörur og úrvalið eykst jafnt og þétt. Hægt er að skoða úrvalið í netverslun okkar og þar gætu til dæmis leynst spennandi jólagjafir.“ Nánari upplýsingar um námskeið, gjafabréf og vörur má finna á vef Kokteilaskólans.
Drykkir Jólagjafir fyrirtækja Matur Mest lesið Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Lífið Bróðurinn grunaði að Hulda væri hálfsystir þeirra Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Bíó og sjónvarp Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna Lífið „Ma & pa í apríl“ Lífið Fleiri fréttir Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Höfundar lesa í beinni í kvöld BRASA er nýr og glæsilegur veitingastaður í hjarta Kópavogs Birgitta Haukdal áritaði bækur í Smáralind Mannlega hlið fjármálanna kjörnuð í bókinni Sálfræði peninganna Eru geimverur meðal okkar? Tilbrigði við sannleika Myndaveisla: Klikkuð stemning í Eldhúspartýi FM957 Partyland fagnar tveggja ára afmæli með 20% afslætti alla vikuna Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Einar Már, Sunna Dís og Sigrún Eldjárn lesa upp í kvöld Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Fegurðin og fjölbreytnin í krulluðu hári Nanna Rögnvaldar og Hallgrímur Helga lesa í kvöld Sól, borg, skíði og flug á einum stað Sjá meira