Ísraelsher hvetur íbúa Gasa-borgar til að yfirgefa borgina Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. júlí 2024 12:52 Margir íbúar Gasa hafa nú mátt þvælast fram og aftur um svæðið með fjölskyldur sínar til að freista þess að forðast árásir og bardaga. AP/Abdel Kareem Hana Ísraelsher hefur hvatt alla íbúa í Gasa-borg til að yfirgefa borgina þar sem hún sé nú hættulegt átakasvæði. Tvær flóttaleiðir eru merktar á kortum sem var dreift úr flugvél, sem liggja að tjaldbúðum í Deir al-Balah og al-Zawaida.
Samkvæmt BBC hafa Sameinuðu þjóðirnar lýst áhyggjum af tilskipuninni. Ísraelsher hefur á síðustu tveimur vikum nokkrum sinnum gefið út rýmingartilskipanir fyrir afmörkuð svæði innan borgarmarkanna, þar sem hermálayfirvöld telja Hamas og Islamic Jihad hafa náð aftur vopnum sínum. Í yfirlýsingu sem send var út í morgun var greint á því að herinn hefði ráðist í aðgerð gegn bardagamönnum samtakanna sem hefðust við í höfuðstöðvum Palestínu-fljóttamannahjálparinnar (UNRWA) í Gasa-borg. Almennum borgurum hefði verið veitt tækifæri til að flýja svæðið áður en ráðist var inn í bygginuna og hryðjuverkamennirnir felldir í bardögum. Þá sagði að tugir hryðjuverkamanna hefðu verið drepnir í hverfinu Shejaiya og neðanjarðargöng eyðilögð. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur, sem fyrr segir, þungar áhyggjur af þróun mála og segir Deir al-Balah þegar yfirfullt af Palestínumönnum á vergangi. Innviðir væru takmarkaðir og aðstoð af skornum skammti.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Hernaður Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Innlent Fleiri fréttir Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Sjá meira