Innlent

Sniglar hægja á um­ferð

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Bifhjólasamtökin Sniglar stóðu fyrir hópakstri um hádegi.
Bifhjólasamtökin Sniglar stóðu fyrir hópakstri um hádegi. visir

Töluverð umferðarteppa myndaðist á Hringbraut í dag vegna hópaksturs bifhjólasamtakanna Snigla. 

Í tilkynningu lögreglu segir að nú hafi bifhjólin farið um gatnamót Hringbrautar og Vatnsmýrarvegar og því ætti umferðin að ganga þar áfram með eðlilegum hætti. 

Hópurinn fór frá Grandagarði kl. 12. Þaðan lá leiðin um Mýrargötu, Geirsgötu, Lækjargötu, Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu, Gömlu Hringbraut, Vatnsmýrarveg, Hlíðarfót og Nauthólsveg, en aksturinn endar við Háskólann í Reykjavík. 

Gera má ráð fyrir að umrædd hópkeyrsla standi yfir í allt að klukkustund, þ.e. frá Grandagarði að Háskólanum í Reykjavík.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×