Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2024 14:07 Enn er stöðug virkni í eldgosinu. Hraun rennur til suðurs. Enn mælist landris í Svartsengi. Vísir/Vilhelm Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður.
Órói hefur haldist stöðugur frá því á mánudegi en hraun rennur áfram í hrauná til suðurs frá gígunum að mestu ofan á hraunbreiðunni sem myndaðist á fyrstu dögum gossins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands en á myndinni fyrir neðan má sjá útbreiðslu hraunsins eins og það var kortlagt frá gervitunglamynd síðan 26. mars og svæði þar sem breytingar hafa orðið á milli 20. og 26. mars. Hraunbreiðan við Sundhnúksgíga. Mynd/Veðurstofan Í frétt Veðurstofunnar segir að skástrikaðar þekjur sýni svæði þar sem breytingar hafa orðið á hraunbreiðunni á milli 20. og 26. mars. Sá hluti skástrikaða svæðisins sem er rauðlitaður táknar svæði þar sem hraun hafði ekki runnið yfir áður í þessu eldgosi, þar á meðal er Melhólsnáma sunnan Hagafells. Ljósfjólubláar þekjur sýna svæði þar sem hraun rann frá eldgosum í febrúar og janúar. Í Svartsengi mælist enn landris en mun hægara en það hefur verið fyrir þau eldgos eða kvikuhlaup sem orðið hafa á síðustu mánuðum. Samkvæmt sérfræðingum Veðurstofunnar bendir það til þess að enn safnist upp kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt það sé eldgos í gangi. Lítil sem engin skjálftavirkni hefur mælst á svæðinu. Áfram hætta á gasmengun Veðurstofan hefur síðustu daga, í samstarfi við Almannavarnir, bætt við gasmælum á tveimur stöðum til að fylgjast með gasmengun (SO2). Annar þeirra er staðsettur við Bláa lónið og hinn á hafnarsvæði Grindavíkur. Þetta er viðbót við þá mæla sem Umhverfisstofnun heldur úti. Báðar stöðvarnar eru að streyma gögnum á vefsíðu Umhverfisstofnunar . Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í skamma stund í Grindavík í nótt (allt upp í 9000 míkrógrömm/m3) en þau lækkuðu fljótt aftur niður í eðlileg gildi. Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í Bláa lóninu og í Höfnum í gær. Hæst fóru gildin í 7000 microgröm/m3 í Bláa lóninu og í 2000 microgröm/m3 í Höfnum. Slíkur styrkur er talinn mjög óhollur og líklegt að flestir gætu fundið fyrir einkennum í öndunarfærum. Gaslosun frá eldgosinu er líkleg til að valda áfram mengun á Reykjanesskaganum og er fólki á svæðinu bent á að fylgjast með á loftgæði og kynna sér þar viðbrögð við loftmengun frá eldgosinu.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Reykjanesbær Loftgæði Tengdar fréttir Dró úr virkninni í nótt í fyrsta sinn frá því að gosið hófst „Það hefur svona aðeins dregið úr virkninni í nótt,“ segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands um stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga. 25. mars 2024 07:14 Uppfært hættumat Veðurstofa Íslands hefur uppfært nýtt hættumat og fylgir því hættumatskort sem skiptist upp í sjö hættusvæði. Hættan er talin mjög mikil á tveimur þeirra, lengju sem nær frá Klifhólahrauni norðan við Grindavík yfir Sundhnúksgíga og norður að Kálffellsheiði handan við hraunið frá því í desember í fyrra. 2. mars 2024 17:34 Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. 27. mars 2024 11:57 Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. 26. mars 2024 15:42 Sprungufylling á borði bæjarstjórnar en eðlilegt að hún óski hjálpar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið. 26. mars 2024 14:05 Vilja að ríkið fjármagni sprungufyllingar fyrir hundruð milljóna Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar. 25. mars 2024 20:30 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Sjá meira
Dró úr virkninni í nótt í fyrsta sinn frá því að gosið hófst „Það hefur svona aðeins dregið úr virkninni í nótt,“ segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands um stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga. 25. mars 2024 07:14
Uppfært hættumat Veðurstofa Íslands hefur uppfært nýtt hættumat og fylgir því hættumatskort sem skiptist upp í sjö hættusvæði. Hættan er talin mjög mikil á tveimur þeirra, lengju sem nær frá Klifhólahrauni norðan við Grindavík yfir Sundhnúksgíga og norður að Kálffellsheiði handan við hraunið frá því í desember í fyrra. 2. mars 2024 17:34
Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. 27. mars 2024 11:57
Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. 26. mars 2024 15:42
Sprungufylling á borði bæjarstjórnar en eðlilegt að hún óski hjálpar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið. 26. mars 2024 14:05
Vilja að ríkið fjármagni sprungufyllingar fyrir hundruð milljóna Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar. 25. mars 2024 20:30