Fótbolti

Alexandra kom inn af bekknum og skoraði í sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alexandra skoraði mikilvægt mark í dag.
Alexandra skoraði mikilvægt mark í dag. Lisa Guglielmi/LiveMedia/NurPhoto via Getty Images

Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir skoraði seinna mark Fiorentina er liðið vann 2-1 sigur gegn Sampdoria í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Heimakonur í Firoentina komust yfir á 20. mínútu þegar Cecilia Re varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Alexandra kom svo inn af varamannabekknum eftir rétt rúmlega klukkutíma leik og hún bætti öðru marki Fiorentina við þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.

Victoria Dellaperuta minnkaði umuninn fyrir gestina stuttu síðar, en niðurstðaan varð 2-1 sigur Fiorentina sem nú situr í öðru sæti deildarinnar með 36 stig eftir 16 leiki, níu stigum á eftir toppliði Roma. Sampdoria situr hins vegar í sjöunda sæti með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×