Lífið

Funheitar og fágaðar flugkonur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Flugkonur eru um 12 til 14 prósent af heildarfjölda atvinnuflugmanna hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og Play.
Flugkonur eru um 12 til 14 prósent af heildarfjölda atvinnuflugmanna hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og Play.

Flugmannastarfið var lengi álitið karlastarf hér á landi eða til ársins 1984 þegar fyrsta konan, Sigríður Einarsdóttir, hóf atvinnuflugmannsferil sinn hjá Flugleiðum. Mikil fjölgun hefur orðið af kvenkyns flugmönnum hér á landi síðastliðin ár og er hlutfall kvenna í stéttinni með því hæsta í heiminum. 

Í tímaritinu Rökkur árið 1949 kemur fram að konur óskuðu eftir því að fá jafna aðstöðu til þess að stunda þessa atvinnu. Þær vildu geta fengið ábyrgðarstöður eins og karlmenn:

„Þær hætta lífi sínu jafnt og karlmenn og þær hafa tekið á sig alla erfiðleika fúslega. Sigg á hnúum, flumbraðir fótleggir, brotnar og rifnar neglur, hörund sem er eins og sútað skinn, úfið hár og ótótlegt. Þetta fylgir allt starfinu, en enginn tepruskapur hefur staðið þeim konum í vegi sem stunda vilja fluglistina.“ 

Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Sigríði eftir síðustu lendinguna hennar í flugstjórnarsætinu.

Tímarnir hafa breyst og hefur fjölbreytileikinn tekið við á jörðu niðri sem og í háloftunum sem er mikið gleðiefni. Hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og Play eru tólf til fjórtan prósent atvinnuflugmanna konur.

Lífið á Vísi setti saman lista af glæsilegum og ólíkum flugkonum, sem starfa innan raða íslensku flugfélaganna, Icelandair og Play, auk þess sem við spurðum þær hvað það sé við starfið sem heilli þær.

Jafnast ekkert á við kyrrðina sem fylgir því að taka á loft

Berglind Heiða Árnadóttir hóf störf hjá Icelandair árið 2004 sem flugfreyja samhliða flugnáminu.

Berglind Heiða hóf störf sem flugmaður árið 2004.Aðsend

„Ég fékk  vinnu sem flugmaður hjá Flugfélagi Vestmannaeyja árið 2005 og í framhaldinu hjá Icelandair 2006. Starfaði einnig erlendis í rúm tvö ár, bjó þá í Papúa Nýju-Gíneu, Ástralíu og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum sem var dýrmæt lífsreynsla. 

Flugið er ákveðinn lífsstíll sem hefur alltaf heillað. Ég ólst upp í þessu umhverfi og vissi snemma að þarna ætti ég heima. Pabbi var flugmaður hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum. Ég hef þetta flökkueðli frá honum,“ segir Berglind. 

Tvennt heillar hana mest við starfið. 

Aðsend

„Starfsumhverfið er mjög fjölbreytt - enginn dagur eins, óreglulegur vinnutími, skemmtilegt og vandað samstarfsfólk og ferðalög. Maður er alltaf að kynnast nýju fólki og mynda tengsl við fólk á öllum aldri. Síðan er starfið sjálft mjög krefjandi og skemmtilegt. Við vinnum eftir mjög skýrum verkferlum en þurfum á sama tíma alltaf að vera viðbúin hinu óvænta, leysa verkefni og áskoranir sem koma upp og hugsa út fyrir boxið. 

Svo jafnast ekkert á við kyrrðina sem fylgir því að taka á loft og kúpla sig frá þessu daglega amstri, þá er stundum eins og tíminn standi í stað.“

Eftirminnilegur gamlársdagur

Sigrún Björg Ingvadóttir hóf störf hjá Icelandair sem flugfreyja þann 4. júní 1994. Samhliða starfinu var hún í flugnámi. Hún var svo ráðin sem flugmaður á gamlársdag 1999.

Sigrún heillast að fjölbreytni starfsins dag frá degi.Aðsend

„Flugið er svo ótrúlega fjölbreytt og skemmtilegt starf. Þú þarft bæði að kunna tæknilega hluta vinnunnar og ekki síst að vera fær í mannlegum samskiptum og búa yfir leiðtogahæfni. 

Fólkið sem velur sér þennan vettvang sem ævistarf er upp til hópa ótrúlega lifandi og skemmtilegt. Það er enginn dagur eins í þessu starfi og það heillar mig líka,“ segir Sigrún.

Sigrún náði skemmtilegum árangri að lenda í öllum heimsálfunum, að Suðurskautslandinu meðtöldu á sama árinu.Aðsend

„Í fyrra náði ég til dæmis þeim ótrúlega skemmtilega árangri að lenda í öllum heimsálfunum, að Suðurskautslandinu meðtöldu á sama árinu.

Endalaus ævintýri og skemmtilegt fólk sama hvort ég er að fljúga til Köben, á Suðurskautið eða hringinn í kringum heiminn.“

Ekki aftur snúið eftir fyrsta prufutímann

Victoría Geirsdóttir segir flugáhugann hafi kviknað þegar hún var lítil. Hún starfaði sem flugfreyja til fjölda ára áður en hún settist í framsætið.

Victoría hefur starfað hjá Play frá stofnun flugfélagsins.Aðsend

„Foreldrar mínir komu mér á óvart og gáfu mér fyrsta prufutímann 2014 og þá var ekki aftur snúið. Ég starfaði í fluggeiranum með náminu, fyrst sem flugfreyja hjá WOW og svo hef ég verið hjá Play frá stofnun. Ég var yfirflugfreyja hjá þeim þar til ég byrjaði að fljúga sjálf í júlí 2023,“ segir Victoría.

„Það sem heillar mig mest við starfið er að enginn dagur er eins, ég fæ að kynnast allskonar fólki og ferðast.“
Flogið yfir landið.Aðsend

Fjölbreyttar áskoranir 

Birna Katrín Gunnlaugsdóttir hóf störf sem flugmaður hjá Icelandair Regional í ársbyrjun 2023 þar sem hún flýgur flugvélatýpunni Dash 8. 

Birna hóf störf sem flugmaður í fyrra.Aðsend

„Það skemmtilegasta við vinnuna eru áskoranir dagsins en þær geta verið mjög ólíkar. Svo eru það auðvitað samstarfsfélagarnir en þetta er þéttur og skemmtilegur hópur,“ segir Birna.

Birna heillast að þeim ólíku áskorunum sem flugið býður upp á.Aðsend

Óútskýranlegir töfrar

Halldóra Þorvaldsdóttir hefur starfað sem flugmaður frá árinu 2006. Þá hjá Mýflugi þar sem hún sinnti útsýnisflugi, sjúkraflugi og leiguflugi. 

Halldóra hefur sýmt ólíkum tegundum af flugi í gegnum tíðina. Aðsend

„Eftir það fór ég í áætlunarflug innanlands og til Grænlands fyrir Flugfélag Íslands áður en ég byrjaði hjá Icelandair árið 2012,“ segir Halldóra.

„Fyrir utan hvað starfið er skemmtilega krefjandi og að engir tveir dagar eru eins þá stendur upp úr allt þetta frábæra samstarfsfólk sem ég fæ tækifæri til að starfa með í hverju flugi. Þrátt fyrir að við séum stór hópum vinnum við alltaf sem ein heild. Verkferlar og kúltúr fyrirtækisins eru upp á tíu.“

Starfið sem flugmaður er skemmtilega krefjandi.Aðsend
„Það eru einhverjir óútskýrðir töfrar við það að starfa um borð í flugvél sem maður fær ekki nóg af. Útsýnið, flugvélalyktin og stemmningin spila þar saman.“

Klisjukennd staðreynd 

Soffía Bergsdóttir segir það klisjukennda staðreynd að elska það að fljúga flugvélum, bæði stórum sem smáum. Hún byrjaði að fljúga árið 2014 og var síðan ráðin sem flugmaður hjá Icelandair fyrir sumarið 2018.

Soffía hefur starfað í flugbransanum frá árinu 2014.Aðsend

„Flugstjórnarklefinn er einstakur vinnustaður með frábærum samstarfsfélögum og svo skemmir útsýnið ekki fyrir,“ segir Soffía.

Soffía starfar sem flugmaður hjá Icelandair.Aðsend

Áhugasöm um flugvélar

Hera Björk Hafsteinsdóttir lærði einkaflugmanninn í Svíþjóð árið 2014 en kláraði atvinnuflugmannsnámið á Íslandi 2017.

Hera tók einkaflugmannsprófið í Svíþjóð.Aðsend

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á flugvélum og flugi og ákvað þegar ég var tíu ára gömul að ég ætlaði að verða flugmaður. 

Það besta við að vinna sem flugmaður er að sjálfsögðu að fá að fljúga og allt sem tengist flugvélunum. Einnig er mjög skemmtilegt að fá tækifæri til að kynnast nýju fólki. Það er enginn dagur eins í þessu starfi,“ segir Hera.

Aðsend

Talar fjögur tungumál reiprennandi

Anastasia Isabella er þýsk og starfar sem flugstjóri hjá Play. Áður starfaði hún hjá Wow Air og Easyjet. 

„Á þessum tólf árum sem ég hef starfað sem flugmaður hef ég búið víðs vegar um heiminn og fengið að sinna ólíkum verkefnum. Allt frá því að fljúga einkaþotum, VIP-flugum, með stjórnmálamenn og konungsfólk yfir  í að fljúga veikum farþegum í sjúkraflugi og líffærum til líffæragjafa,“ segir Anastasia.

Anastasia hefur starfað sem flugmaður í tólf ár og talar fjögur tungumál.Aðsend

Að sögn Anastasiu varð hún dolfallin af flugheiminum eftir að eldri systir hennar, sem starfaði sem flugfreyja, tók hana með sér í stopp til New York í Bandaríkjunum. 

„Systir mín mælti með því að ég myndi skoða flugnám í stað þess að sækja um starf sem flugfreyja. Ári síðar var ég komin í atvinnuflugmannsnám,“ segir Anastasia.

„Það eru algjör forréttindi að vera í einni bestu vinnu í heimi og að fá tækifæri að ferðast til ólíkra landa, ásamt því að kynnast hópi af frábæru fólki. Það er því enginn dagur á skrifstofunni sem ég nýt mín ekki.

Það er svo dásamlegt að taka á loft snemma morguns og horfa á sólarupprásina á meðan restin af heiminum sefur.“

Auk þess segir Anastasia að það sé stór plús fá tækifæri til að búa á Íslandi. 

„Ég elska Ísland og fólkið, sem lætur mér líða eins og heima hjá mér. Eftir langan vinnudag er fátt betra en að fara á hestbak eða slaka á í sundi.“

Fjölbreytileikinn heillar

Hildur Björk Pálsdóttir starfaði sem flugfreyja hjá Icelandair í tvö sumur áður en hún hóf störf sem flugmaður árið 2016. 

Hildur útskrifaðist sem flugmaður árið 2016.Hildur Björk

„Það sem heillar mig mest við starfið er fjölbreytileikinn. Það er unnið á öllum tímum sólarhrings og árs, með mismunandi áhöfnum í hvert skipti, og áfangastaðirnir ólíkir. 

Flugbransinn er svo skemmtilegur og lifandi, stöðugar breytingar og alls konar sem getur komið uppá. 
Hildur starfaði sem flugfreyja í tvö sumur.Aðsend

Ég þrífst vel í þannig umhverfi. Svo skemmir auðvitað ekki útsýnið af skrifstofunni.“

Ekki aftur snúið eftir fyrsta flugtímann

Laufey Einarsdóttir hóf atvinnuflugmannsferilinn hjá finnska flugfélaginu Air Finland og kom til Icelandair árið 2012.

„Áhugi minn á flugi kviknaði þegar ég starfaði sem flugfreyja hjá Icelandair. 

Ég ákvað að fara í prufutíma hjá Flugskóla Íslands og þá var ekki aftur snúið,“ segir Laufey.
Laufey fékk flugstjórastöðu árið 2023.Aðsend

„Það var svo á síðasta ári sem ég tók flugstjórasætið. Það sem heillar mig mest við starfið er fjölbreytileikinn og allt fólkið sem maður kynnist. En svo er það ævintýri líkast að komast í heimsferð og sjá fjarlægari staði.“

Flugfólk Icelandair hefur tækifæri á sækja um að fara í sérstakar heimsferðir sem eru á vegum Loftleiða.Aðsend

Enginn dagur fyrirsjáanlegur

Rós Sigurðardóttir hóf störf sem flugmaður hjá Play í júlí á síðasta ári en hefur starfað innan fluggeirans frá árið 2017.

Rós starfaði áður hjá Wow air.Aðsend

„Ég var að vinna hjá Wow Air í Flight Operations árið 2017. Ég byrjaði svo hjá Play í janúar 2022, fyrst sem Flight Safety Officer og Auditor og núna sem Flugmaður. 

Það má vel segja að flugiðnaðurinn sé ávanabindandi, ég hef ekki upplifað einn dag sem er fyrirsjáanlegur.

Síbreytilegt umhverfið, vinnan og æðislegir vinnufélagar gera þetta að frábæru starfi.“
Rós hóf störf hjá Play árið 2022.Aðsend

Tengdar fréttir

Funheitar og föngulegar flugfreyjur

Flugfreyjustarfið var lengi álitið kvennastarf sem einkenndist af glamúr, glæsileika og kynþokka. Konur eru enn í miklum meirihluta innan starfsstéttarinnar þrátt fyrir töluverða aukningu af karlmönnum síðastliðin ár. Starf flugfreyju er fyrst og fremst öryggisstarf.

Heitir í háloftunum

Karlkyns flugþjónum, eða heitum háloftaprinsum, hefur fjölgað ört á síðastliðnum árum. Í gegnum tíðina hafa konur verið kenndar við starfið út frá gömlum staðalímyndum. Flugfreyjur áttu að vera ógiftar og snotrar í vexti.

Icelandair frumsýnir nýjan einkennisfatnað

Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í dag. Breytingin er í takt við samfélagslegar breytingar og liðkaðar reglur félagsins sem voru kynntar árið 2019. Fólk getur valið hvernig það klæðist óháð kyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×