Fótbolti

Ísak Snær tryggði ís­lenskan sigur með sögu­legu marki

Smári Jökull Jónsson skrifar
Arnór Ingvi Traustason var fyrirliði Íslands í dag.
Arnór Ingvi Traustason var fyrirliði Íslands í dag. Knattspyrnusamband Gvatemala

Íslenska landsliðið í knattspyrnu bar sigurorð af Gvatemala en leikur þjóðanna fór fram í Flórída í Bandaríkjunum. Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik.

Leikur þjóðanna fór fram í Fort Lauderdale í Flórída en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland mætir Gvatemala í landsleik. Íslenska liðið er í 71. sæti á styrkleikalista FIFA en Gvatemala í 108. sæti. 

Þar sem ekki er um alþjóðlegan landsleikjaglugga að ræða gátu félagslið stoppað leikmenn sína af í þetta verkefni. Í íslenska liðinu eru því aðeins leikmenn sem leika í deildum þar sem ekki er spilað um þessar mundir.

Íslenska liðið var frekar tíðindalítill. Kolbeinn Finnsson átti skot á marki á 8. mínútu en hefði mögulega frekar átt að gefa á Birni Snæ Ingason sem var nokkuð opinn í betri stöðu. Íslenska liðið hélt boltanum ágætlega en náði ekki að skapa sér hættulegar stöður nægilega oft.

Á 38. mínútu fékk Brynjólfur Andersen Willumsson gott færi eftir að hafa unnið boltann af varnarmanni. Skot hans var hins vegar misheppnað og auðvelt viðureignar fyrir markvörð Gvatemala.

Staðan í hálfleik var 0-0 en Ísland gerði þrjár breytingar í hálfleik og komu þeir Logi Tómasson, Kristall Máni Ingason og Ísak Snær Þorvaldsson allir inn í liðið.

Íslenska liðið hélt áfram að vera með yfirhöndina eftir hlé. Leikmenn Gvatemala stunduðu það óspart að henda sér í jörðina við minnsta tilefni og féll dómari leiksins of oft í þá gildru að flauta aukaspyrnur í kjölfarið og tók oft á tíðum óratíma að hefja leik að nýju.

Íslenska liðið var beinskeyttara í sínum aðgerðum og komst Brynjar Ingi Bjarnason nokkuð nálægt því að skora þegar fyrirgjöf hans frá hægri stefndi í nærhornið en markvörður Gvatemala náði að slá boltann frá.

Á 64. tókst Eggerti Aroni Guðmundssyni síðan að koma knettinum í netið en búið var að flauta aukaspyrnu á íslenska liðið. Mínútu síðar fékk Gvatemala mjög gott færi. Esteban Garcia skallaði þá framhjá af markteig eftir fyrirgjöf. Færið var gott en skallinn algjörlega misheppnaður.

Fyrsta markið reyndist sigurmark

Á 79. mínútu kom loks fyrsta markið. Eggert Aron gerði vel í að finna Loga Tómasson í fyrirgjafastöðu vinstra megin. Fyrirgjöf Loga var góð og rataði á kollinn á varamanninum Jasoni Daða Svanþórssyni. Hann skallaði boltann fyrir fætur Ísask Snæs Þorvaldssonar sem kláraði frábærlega með vinstri fæti. Staðan orðin 1-0 fyrir Ísland.

Markið er fyrsta landsliðsmark Ísaks Snæs sem leikur með Rosenborg í Noregi en hann var að leika sinn fimmta A-landsleik.

LIð Gvatemala kom framar á völlinn eftir markið og skapaði hættu í nokkur skipti eftir hornspyrnur. Fyrst reyndi á Hákon Rafn í markinu á 86. mínútu þegar hann þurfti að bregðast við í tvígang þegar bolti féll fyrir fætur leikmanns Gvatemala. Brynjar Ingi Bjarnason gerði sömuleiðis vel þegar hann komst fyrir skot Elmer Cardoza í teignum. 

Eggert Aron Guðmundsson sést hér elta leikmann Gvatemala uppi en Eggert Aron lék vel í sínum fyrsta landsleik í nótt.Knattspyrnusamband Gvatemala

Mark Ísaks reyndist hins vegar eina mark leiksins þrátt fyrir ótrúlegar senur á lokasekúndum leiksins þegar Gvatemala komst í þrígang afar nálægt því að skora eftir enn eina hornspyrnuna. Lokatölur 1-0 Íslandi í vil sem þar með fagnar sigri í fyrsta leik ársins.

Ísland sýndi heilt yfir ágæta frammistöðu. Miðverðirnir Brynjar Ingi Bjarnason og Daníel Leó Grétarsson voru traustir og Eggert Aron Guðmundsson líflegur og vinnusamur í sínum fyrsta landsleik. Hákon Rafn gerði vel þegar hann þurfti að grípa inn í Stefán Teitur Þórðarson var duglegur á miðjunni.

Ísland mætir Hondúras næst aðfaranótt fimmtudags og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×