Innlent

Rýmka reglur fyrir Grind­víkinga

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá Grindavík þar sem unnið er að viðgerðum.
Frá Grindavík þar sem unnið er að viðgerðum. Vísir/Vilhelm

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ. Rýming fer nú fram eftir kl. 21 á kvöldin.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar kemur fram að sami tími verði því í gildi fyrir íbúa og starfsmenn fyrirtækja eða frá því klukkan 07:00 á morgnana til 21:00.

Fjölmiðlar hafa aðgang að bænum á sama tíma. Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður ekki fylgt inn á svæðið en viðbragðsaðilar verða til staðar í bænum.

Bærinn verður svo rýmdur eftir kl. 21 daglega. Óviðkomandi er bannaður aðgangur, að því er segir í tilkynningunni. Eftirlit verður haft með þeim bílum sem fara inn og út úr bænum. Ekki er talið óhætt að leyfa íbúum að gista í bænum í desember. Staðan verður endurmetin í byrjun næsta árs.

Uppfært hættumatskort vegna jarðhræringa við Grindavík. Almannavarnir

Nýtt hættumatskort

Þá er minnt á í tilkynningu lögreglu að nýtt hættumatskort hafi verið gefið út þann 8 desember. Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða.

Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara. Kortið verður uppfært reglulega og ræðst af því hver þróun virkninnar verður.

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hægt hefur aðeins á landrisinu frá því á föstudag, en hraðinn á landrisinu er engu að síður meiri en mældist fyrir 10. nóvember sl. þegar að kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík myndaðist. Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Að mati Veðurstofu Íslands kalla umbrotin 10 nóvember sl. á mun umfangsmeiri vöktun á Reykjanesskaga og skipuleggur Veðurstofan nú umfangsmeiri vöktun en verið hefur. Hlutverk Veðurstofunnar með vöktun og hættumati er að skapa forsendur fyrir viðbragðsaðila til að taka ákvarðanir um aðgerðir.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar gefa það til kynna með hljóðmerkjum og ljósmerkjum. Akstursleiðir út úr bænum eru eftir Nesvegi, Suðurstrandarvegi og eftir atvikum Grindavíkurvegi.

Til athugunar fyrir þá sem fara inn í bæinn:

  • Íbúar í Grindavík þurfa ekki að skrá sig til að komast inn í bæinn. Bílar eru taldir inn og út af svæðinu.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur verður opinn á morgun fimmtudag og á föstudag. Þungaflutningar um veginn liggja þá að mestu leyti niðri. Vegurinn er á köflum ekki í góðu ásigkomulagi og eru ökumenn því beðnir um að aka varlega.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með en sprungur geta reynst viðsjárverðar.
  • Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is
  • Mikilvægt er að þeir sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×