Vendingarnar kringum OpenAI hafa verið hraðar síðustu daga.
Sam Altman, fyrrverandi forstjóri, var rekinn af stjórn OpenAI á föstudaginn, að virðist vegna Ilya Sutskever, sem var einnig einn stofnenda fyrirtækisins. Strax í kjölfarið hætti Greg Brockman, stjórnarformaður og annar stofnandi fyrirtækisins, í mótmælaskyni.
Um helgina stóðu yfir viðræður um að þeir myndu snúa aftur en ljóst var í gærkvöldi að þær viðræður myndu ekki skila árangri. Nokkrum klukkustundum síðar tilkynnti Satya Nadella, forstjóri Microsoft, að bæði Altman og Brockman hefðu verið ráðnir til fyrirtækisins og að þeir og aðrir starfsmenn þeirra myndu ganga til lið við Microsoft.
I m super excited to have you join as CEO of this new group, Sam, setting a new pace for innovation. We ve learned a lot over the years about how to give founders and innovators space to build independent identities and cultures within Microsoft, including GitHub, Mojang Studios,
— Satya Nadella (@satyanadella) November 20, 2023
Á sama tíma tilkynnti stjórn OpenAI að Emmett Shear, fyrrverandi forstjóri Twitch, myndi taka við sem forstjóri fyrirtækisins. Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að hegðun Altman gagnvart stjórninni og skortur á gagnsæi hafi grafið undan getu stjórnarinnar til að stýra fyrirtækinu með eðlilegum hætti.
Heimildarmenn WSJ segja Altman og Sutskever hafa deilt um stefnu fyrirtækisins en ekkert eitt atvik hafi leitt til vendinga helgarinnar. Þess í stað hafi traust milli stjórnarinnar og Altman gufað upp hægt og rólega.
Hvaða áhrif þetta mun hafa á OpenAI er óljóst en í frétt New York Times segir að starfsmenn hafi margir verið ósáttir við að Altman hafi verið rekinn og segjast einhverjir þeirra hafa þegar sagt upp. Líklega munu starfsmenn OpenAI fara með Altman og Brockman til Microsoft en þeir tveir eiga að stýra nýrri rannsóknarstofu og halda störfum sínum við þróun mállíkana og gervigreindar áfram.
Þessi rannsóknarstofa á að vera rekin sem sjálfstæð rekstareining innan Microsoft.
Greg Brockman birti um helgina langa færslu á X (áður Twitter) þar sem hann fór yfir tímalínuna á föstudeginum og hvernig Altman var rekinn og honum vikið úr stjórninni fyrirvaralaust.
Sam and I are shocked and saddened by what the board did today.
— Greg Brockman (@gdb) November 18, 2023
Let us first say thank you to all the incredible people who we have worked with at OpenAI, our customers, our investors, and all of those who have been reaching out.
We too are still trying to figure out exactly
Hafa fjárfest mikið í OpenAI
Gervigreindir eins og ChatGPT eru í einföldu máli sagt, látnar skoða mikið magn texta sem finna má á internetinu, eins og fréttir, síður á Wikipedia, samtöl á samfélagsmiðlum og ýmislegt annað, svo þær læri að skrifa, svara spurningum og jafnvel semja bækur í stíl tiltekinna höfunda.
Sjá einnig: Segja það taka verulega á að sía viðbjóðinn úr ChatGPT
Microsoft hefur fjárfest verulega í OpenAI á undanförnum árum. Eins og fram kemur í grein Wall Street Journal á Microsoft 49 prósenta hlut í OpenAI og notar tæknina á bakvið Chat GPT til að mynda við gervigreindina Bing. Forsvarsmenn Microsoft vissu ekki af brottrekstri Altman fyrr en einni mínútu áður en hann var tilkynntur opinberlega.
Sjá einnig: Setja gervigreind í farþegasætið á netinu
Þeir fjórir meðlimir stjórnarinnar sem sitja eftir, tengjast ekki stærstu fjárfestum OpenAI eins og Microsoft og nokkrum fjárfestingasjóðum. Þessir fjárfestar reyndu að aðstoða Altman og Brockman við að ná aftur tökum á fyrirtækinu um helgina. Ein af kröfum Altman var að allir í stjórninni stigu til hliðar en þeir neituðu.
Altman, Brockman og Sutskever stofnuðu OpenAI árið 2015, með níu öðrum og þar á meðal auðjöfrinum Elon Muks. Fyrirtækið var upprunalega óhagnaðardrifið en Altman breytti því þegar Musk sleit tengslum sínum við OpenAI árið 2018.
Fyrirtækið hefur stækkað mjög síðan þá, með um 700 starfsmenn og allt að milljarð dala í tekjur.