Innlent

Harka­legur á­rekstur við Skeiðarvogsbrú

Jón Þór Stefánsson skrifar
Áreksturinn varð við Skeiðarvogsbrú, sem sést ofarlega á myndinni fyrir miðju.
Áreksturinn varð við Skeiðarvogsbrú, sem sést ofarlega á myndinni fyrir miðju. Vísir/Vilhelm

Árekstur var við Skeiðarvogsbrú um þrjúleytið í dag. Sjónarvottur telur að tveir bílar hafi lent í árekstri og segir að hann valdi einhverri umferðarteppu.

Umferðardeild lögreglunnar veitir fréttastofu þær upplýsingar að lítið sé vitað um málið að svo stöddu. Aðgerðir viðbragðsaðila séu enn í gangi.

Lögreglan hafi fengið tilkynningu um málið fyrir skömmu, en svo virðist sem um harkalegan árekstur sé að ræða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×