Innlent

Lausa skrúfan og Wild­heart hlutu hæstu styrkina

Lovísa Arnardóttir skrifar
Mynd tekin við afhendingu viðurkenningarskjala vegna úthlutunar í dag.
Mynd tekin við afhendingu viðurkenningarskjala vegna úthlutunar í dag. Mynd/Mummi Lú

Verkefnið Lausa skrúfan á vegum Grófarinnar geðræktar og nýsköpunarverkefnið Wildheart á vegum Hrafntinnu Sverrisdóttur hlutu hæstu styrkina í þriðju úthlutun Styrktarsjóðs geðheilbrigðis í dag.

 Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði íbúa Íslands og/eða skilning þar á. Í tilkynningu frá Geðhjálp kemur fram að alls hafi borist 46 umsóknir til sjóðsins í ár samtals að upphæð 93,5 milljónir króna.

Lausa skrúfan er vitundarvakning vegvísir fyrir fólk á Norðurlandi og er stefnt á að fara af stað með það í febrúar 2024. Verkefninu er ætlað er að bæta samfélagslega vitund um mikilvægi þess að hugsa vel um geðheilsuna, hlúa að henni sem forvörn og hjálpa fólki að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og í því samhengi að berjast gegn sínum innri fordómum ekki síður en ytri.

Til vinstri er Sigríður Gísladóttir, formaður stjórnar Geðhjálpar, og fulltrúi Grófarinnar en verkefni á þeirra vegum, Lausa skrúfan, hlaut hæsta styrkinn í ár. Mynd/Mummi Lú

Wildheart er kvikmynd sem á að stuðla að vitundarvakningu og aukinni umræðu um málefni tengd geðrænum vanda. Verkefnið snertir á stöðu heimilislausra í samfélaginu og flóknum fíknivanda og hvernig áhrifin eru á aðstandendur – börn og fullorðna. Myndin er persónuleg saga um áföll og heilun, hlaðin fallegum og hráum augnablikum, heiðarlegum samtölum, erfiðum spurningum og hugrakkri leit af ást.

Til vinsti er Sigríður Gísladóttir, formaður stjórnar Geðhjálpar, ásamt Hrafntinnu Sverrisdóttur, til hægri. Mynd/Mummi Lú

„Margar þessara umsókna þóttu til fyrirmyndar en sjóðurinn hafði yfir að ráða 16 milljónir króna til þessarar úthlutunar og því ljóst að ekki yrði hægt að styrkja mörg góð verkefni,“ segir í tilkynningunni. Geðhjálp lagði sjóðnum til 180 milljóna króna stofnframlag árið 2021 og hefur síðan þá lagt sjóðnum til 41 milljóna króna til sem notaðar hafa verið til úthlutana síðastliðin þrjú ár.

Fimm manna fagráð, skipað þeim Svövu Arnardóttur, Hrannari Jónssyni, Páli Biering, Salbjörgu Bjarnadóttur og Helgu Sif Friðjónsdóttur, en hún var formaður fagráðsins, fór yfir umsóknirnar og lagði tillögur sínar í hendur stjórnar. Stjórn sjóðsins skipa þau: Sigríður Gísladóttir, formaður, Héðinn Unnsteinsson og Haraldur Flosi Tryggvason.

Í ár var horft sérstaklega til nokkurra þátta þegar umsóknir voru metnar, það eru: valdefling notenda, valdefling aðstandenda, mannréttindi og jafnrétti og nýsköpun.

Öll verkefnin sem hlutu styrk og lýsing á þeim:

Grófin geðrækt: Lausa skrúfan

Verkefnið er vitundarvakning og jafnframt vegvísir fyrir fólk á Norðurlandi og er stefnt á að fara af stað með það í febrúar 2024. Verkefninu er ætlað er að bæta samfélagslega vitund um mikilvægi þess að hugsa vel um geðheilsuna, hlúa að henni sem forvörn og hjálpa fólki að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og í því samhengi að berjast gegn sínum innri fordómum ekki síður en ytri.

Styrkupphæð: 3.500.000 kr.

Hrafntinna Sverrisdóttir: Wildheart

WILDHEART er nýsköpunarverkefni í formi kvikmyndar sem stuðlar að vitundarvakningu og aukinni umræðu um málefni tengd geðrænum vanda. Verkefnið snertir á stöðu heimilislausra í samfélaginu og flóknum fíknivanda og hvernig áhrifin eru á aðstandendur – börn og fullorðna. Myndin er persónuleg saga um áföll og heilun, hlaðin fallegum og hráum augnablikum, heiðarlegum samtölum, erfiðum spurningum og hugrakkri leit af ást.

Styrkupphæð: 2.000.000 kr.

Framfarahugur: Hugræn velferð ungmenna á flótta

Verkefnið snýr að því að halda áfallamiðað leiklistarnámskeið fyrir ungmenni þar sem þeim er mætt á einstaklingsbundinn hátt, skapa öruggt og verndandi umhverfi þar sem hægt er að vinna með áföll, efla sjálfstraust og trú á eigin getu í gegnum leiklist. Markhópurinn er ungmenni af erlendum uppruna á aldrinum 16 til 20 ára óháð búsetu en er sérstaklega miðað að ungmennum í viðkvæmri stöðu þ.m.t flóttabörn.

Styrkupphæð: 1.890.000 kr.

MetamorPhonics: Starfsnám MetamorPhonics á Íslandi

MetamorPhonics eða Korda sinfónían er samfélagsmiðað fyrirtæki sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, tónlistarkona stýrir. Hugmyndafræðin bak við hljómsveitina er að valdefla fólk í gegnum tónlist. Að þátttakendur hljómsveitarinnar upplifi sig sem meðlimi samfélagsins og á þau sé hlustað.

Styrkupphæð: 1.650.000 kr

Matthildur – skaðaminnkun: Lágþröskulda skaðaminnkandi heilbrigðisþjónusta í tónlistarlífinu

Skaðaminnkandi heilbrigðisþjónustan á tónlistarhátíðum og viðburðum þar sem margir koma saman er sólarhringsþjónusta sem veitir hjúkrunarþjónustu, skaðaminnkandi ráðgjöf um vímuefnanotkun, yfirsetu, sálrænan stuðning og tilvísanir í úrræði innan heilbrigðis- og félagskerfis, fyrir gesti viðburðanna.

Styrkupphæð: 1.500.000 kr.

Harpa Einarsdóttir Waage: Angurværð, bók í ljóðrænu formi til sjálfsræktar

Bók sem lýsir reynslu notenda á listrænan hátt. Bókin er myndskreytt með list höfundar og texta. Höfundur fer yfir það hvernig hún náði árangri að heila sársaukann úr líkamanum og náði fullum bata frá geðrænum áskorunum.

Styrkupphæð: 1.150.000 kr.

Hringrásarsetur Íslands: Reddingakaffi

Reddingakaffi tengir sjálfbærni og þátttöku í samfélaginu á tímum loftslagskvíða sem margir upplifa. Verkefnið fagnar fjölbreytileikanum og aðlögun mismunandi hópa í samfélagið. Markmiðið er að ná saman ólíkum hópum á einn stað þar sem reynslu verður deilt, jafnfrétti og mannréttindi sett á oddinn.

Styrkupphæð: 1.000.000 kr.

Traustur Kjarni: Þróun jafningja í samfélaginu

Verkefnið snýr að þjálfun yngri jafningja eftir hugmyndafræði Intentional peer support (IPS). Verkefni miðar að því að þjálfa jafningja fyrir Bergið en þangað leita ungmenni með geðrænar áskoranir.

Styrkupphæð: 1.000.000 kr.

Það er von: Stuðningshópur aðstandenda einstaklinga með tvígreiningu

Markmið verkefnisins er að setja á laggirnar stuðningshóp fyrir aðstandendur einstaklinga með tvígreiningar (fíkn og aðrar geðraskanir). Með stofnun stuðningshópsins verður aðstandendum gefið verkfæri til þess að takast á við þann flókna veruleika sem aðstandendur einstaklinga með fíkn og aðrar geðrænar áskoranir þurfa að takast á við.

Styrkupphæð: 500.000 kr.

Ferðafélag Víðsýnar: Ferðalög félaga í Víðsýn.

Stefna félagsins er að gefa fólki sem á við geðrænar og félagslegar hindranir að etja, tækifæri til að ferðast, efla sjálfstæði og sjálfsmynd með því að takast á við ögranir og stíga út fyrir þægindarammann.

Styrkupphæð: 375.00 kr.

Hringsjá: Heilsuefling

Stefnt er að því að bæta við þverfaglegu endurhæfinguna innan Hringsjár áfanganum Heilsuefling. Áfanginn yrði allt í senn bóklegur, verklegur og vettvangsmiðaður. Markmið áfangans er að þátttakandi geti nýtt sér þá þekkingu sem hann aflar sér til að átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan.

Styrkupphæð: 300.000 kr.

Kristín Auðbjörnsdóttir: Lífið og líðan

Lífið og líðan er samfélagsmiðill sem varð til í veikindaleyfi umsækjanda. Miðillinn er vitundarvakning um (oft ósýnilega) líðan og lífið án glansmyndar. Vettvangur fyrir fræðslu og umræður á jafningjagrundvelli í von um að auka skilning og minnka um leið fordóma.

Stykrupphæð: 300.000 kr.

Sveitarfélagið Hornafjörður: Gott bakland

Dagdvöl fatlaðra haldi námskeið fyrir aðstandendur einstaklinga með geðvanda. Er markmiðið að bjóða upp á námskeið og eftirfylgd í kjölfarið. Aðstandendur geta verið hornsteinninn í bata einstaklinga með geðrænan vanda og mikilvægt að þeirra líðan og þeirra áskoranir sé veitt athygli.

Styrkupphæð: 300.000 kr.

Vinaskákfélagið: Geðveik skák

Styrkurinn er veittur til að halda þrjú skákmót: Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson, Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið og Jólamótið á Kleppi.

Styrkupphæð: 250.000 kr.

Hjálmar Hrafn Sigurvaldason: Reiðmaðurinn á Kameldýrinu

Verkefnið snýst að því að koma saman fjölbreyttu listafólki til að hanna plaköt sem hvert um sig verða einstök. Plakötin eru síðan prentuð í númeruðum eintökum og seld en hagnaður af sölunni fari í geðræktandi verkefni.

Styrkupphæð: 200.000 kr.


Tengdar fréttir

Skammaðist sín fyrir mömmu sína og upp­lifði sig eina

Sig­ríður Gísla­dóttir, for­maður Geð­hjálpar og fram­kvæmda­stjóri Okkar heims, segist hafa skammast sín fyrir and­leg veikindi móður sinnar þegar hún var lítil. Hún segir börn upp­lifa sig ein í slíkum að­stæðum þó rann­sóknir sýni að fimmta hvert barn sé í slíkum að­stæðum.

„Er allt í gulu á þínum vinnustað?“

Átakinu Gulur september var formlega ýtt úr vör í dag af heilbrigðisráðherra og landlækni en Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. 

Of al­gengt að fólk með geð­rænan vanda falli á milli kerfa

Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir áríðandi að koma í veg fyrir að fólk með mikinn geðrænan vanda falli á milli kerfa. Hann segir mál ungrar konu með taugaþroskaröskun sem fjallað var um í kvöldfréttum í gær endurspegla vandann vel. 

Segja konu sem lést á geð­deild hafa verið beitta of­beldi

Nýlegur sýknudómur yfir hjúkrunarfræðingi vegna dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans er dæmi um að fólk sé beitt ofbeldi á sjúkrahúsum og stofnunum, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Þeir gagnýna að enginn axli ábyrgð á andlátinu og því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×