Lífið

„Tíminn læknar öll sár er eitt­hvert mesta bull sem ég hef heyrt“

Lovísa Arnardóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa
Edda Björgvinsdóttir leikkona segir mikilvægt að tryggja góða þjónustu fyrir börn sem upplifa missi og sorg.
Edda Björgvinsdóttir leikkona segir mikilvægt að tryggja góða þjónustu fyrir börn sem upplifa missi og sorg. Vísir/Vilhelm

Edda Björgvinsdóttir er verndari nýs verkefnis á vegum Sorgarmiðstöðvar fyrir börn. Hún segir áríðandi að tryggja börnum góð úrræði í sorg sinni. Hún segir sorgina fylgja sér og að hana vanti enn orð til að ná utan um hana.  

„Maður er aldrei búinn að syrgja. Setningin „Tíminn læknar öll sár“ er eitt­hvert mesta bull sem ég hef heyrt. Því tíminn breytir ein­göngu tíðni grát­kasta og sorgar­við­bragða, en læknar ekki neitt,“ segir Edda Björg­vins­dóttir leik­kona.

Edda, á­samt fleirum, vinnur nú að því að koma á fót lista­smiðju fyrir börn í sorg, sem rekin verður af Sorgar­mið­stöðinni. Í til­efni af því verða á þriðju­dag haldnir góð­gerðar­tón­leikar í Sky Lagoon og mun allur á­góði af tón­leikunum renna beint í þetta nýja verk­efni.

Í lista­smiðjunni verður boðið upp á styðjandi sam­veru­stundir þar sem fag­aðilar, lista­menn og list­með­ferðar­fræðingar vinna með börnum sem orðið hafa fyrir missi.

Allur ágóði rennur í listasmiðjuna

Við­burðurinn er skipu­lagður af góð­gerða­sam­tökunum 1881. Söng­konurnar Salka Sól og GDRN munu báðar koma fram á tón­leikunum auk þess sem plötu­snúðurinn Dóra Júlía mun spila tón­list.

GDRN, Dóra Júlía og Salka Sól koma fram á tónleikunum.

Edda er verndari verk­efnisins og mun hún, á­samt Hrannari Má Ás­geirs Sig­rúnar­syni, for­manni Sorgar­mið­stöðvarinnar, opna við­burðinn á þriðju­daginn.

Edda hefur sjálf upp­lifað sáran og ó­væntan missi þegar hún missti eigin­mann sinn, leikarann Gísla Rúnar Jóns­son, árið 2020.

Hún segist telja það lykil­at­riði fyrir marga að nýta harminn sem þau upp­lifa í að skapa eitt­hvað sem geti hjálpað öðrum.

„Sumir stofna minningar­sjóði, aðrir skrifa sig í gegn um til­finninga­flóðið og enn aðrir nota tón­list eða skapa alls­konar lista­verk eða starfa í góð­gerðar­verk­efnum. Við stofnum lista­smiðju fyrir börn sem syrgja,“ segir Edda.

Fleiri úrræði fyrir fullorðna en börn

Hún segir ó­trú­lega mikil­vægt að góð þjónusta sé í boði fyrir syrgj­endur. Sjálf hafi hún notið þjónustu Sorgar­mið­stöðvarinnar sem hafi reynst henni ó­metan­legt á erfiðum tíma.

„Það eru miklu fleiri úr­ræði fyrir full­orðið fólk, þó svo að heil­brigðis­kerfið sé afar laskað þegar kemur að því að grípa fólk sem upp­lifir al­var­leg á­föll og missi,“ segir Edda og heldur á­fram:

„Ég á sjálf af­kom­endur á öllum aldri sem hafa upp­lifað alls­konar sorgar­við­brögð og litlu börnin í kring um mig - barna­börnin - voru ljós­lifandi dæmi um hvernig sorg bara getur birst. Það var oft svo á­takan­legt að fylgjast með þeim í miklum sárs­auka og söknuði, en birtingar­myndin var stundum eins og þau væru að ganga í gegn um veikindi eða hrein­lega væru al­gjör­lega horfin í eigin heim.“

Edda segir list geta hjálpað börnum mikið. Þau syrgi á annan máta en fullorðnir. Vísir/Vilhelm

Hún segir að þannig hafi hún upp­lifað að sorgar­ferli barna birtist með allt öðrum hætti en full­orðinna.

„Stundum heldur maður hrein­lega að þau séu búin að jafna sig ó­trú­lega fljótt eftir al­var­legan missi, en til­fellið er að sorgar­ferlið þeirra birtist á annan hátt en sorgar­ferli okkar sem full­orðin erum. Þau geta til dæmis tekið sér „hvíld“ frá sorginni og gjör­sam­lega gleymt sér í leik. Svo hellist sorgin yfir þau aftur. Börn tjá sorg sína líka oft á þann hátt að full­orðnir ná ekki alltaf því að börnin séu að sýna sorgar­við­brögð. Þau tjá sig ekkert endi­lega um söknuð og sárs­auka heldur getur sorgin birst í líkam­legum ein­kennum eins og höfuð­verkjum, svefn­truflunum, maga­verkjum, mikilli þreytu, and­þyngslum og alls­konar líkam­legum ein­kennum. Þau glíma líka mörg hver við kvíða og ótta og geta verið að kljást við sam­visku­bit og depurð. Að­stand­endur eru oft ráð­þrota gagn­vart sorg barnanna,“ segir Edda.

Hún segir listina geta hjálpað.

„Að tjá til­finningar sínar í gegn um hin ýmsu list­form reynist börnum oft miklu auð­veldara en að tala um til­finningar sínar. Líðan þeirra birtist oft á svo skýran hátt í því sem þau eru að skapa. Alls­konar rann­sóknir um allan heim sýna okkur að það er hægt að hjálpa börnum gríðar­lega mikið með því að vinna skapandi verk­efni með þeim í sorgar­ferli,“ segir Edda.



Hún segir á­ríðandi að grípa inn í og veita börnum við­eig­andi hjálp þegar þau upp­lifa missi.

„Til­fellið er að ef börn ná ekki að tjá sorg sína og fá við­eig­andi hjálp þá geta sál­ræn á­föll birst löngu eftir að þau full­orðnast og valdið ó­skap­legum sárs­auka og haft al­var­legar heilsu­fars­legar af­leiðingar,“ segir Edda.

Mörg börn án stuðnings

Hún segir allt of mörg börn fara á mis við sorgar­stuðning því að­stand­endur séu sjálfir svo brotnir.

„Þess vegna erum við að safna fyrir þessu verk­efni. Að­stand­endur eru oft svo brotnir sjálfir að þeir eiga fullt í fangi með að halda sér og fjöl­skyldunni gangandi. Það þarf mjög sér­tæka fag­aðila til að hjálpa syrgjandi börnum og Lista­smiðja fyrir börn í sorg gæti bjargað mörgum manns­sálum.“

Spurð hvernig hún upp­lifi sorg og missi segir Edda: „ Ef ég gæti með nokkru móti lýst því í fáum setningum, minni sorg og af­leiðingum missis, þá finndist mér ég vera komin tölu­vert langt í að ná minni lífs- og starfs­orku, en ég á engin orð enn þá.“

Katrín lofar einstakri stemningu í lóninu.

Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann, framkvæmdastýra 1881, segir verkefnið alfarið hugarfóstur Eddu.

„Því miður er enginn ónæmur fyrir sorginni. Við upplifum öll missi einhverntíman á lífsleiðinni. Verkefnið er hugarfóstur Eddu, en hún horfði upp á fjölskyldumeðlimi á öllum aldri tækla sorgina á mismunandi hátt og með stuðningi frá Sorgarmiðstöðinni og námi í Sálgæslu fannst henni þetta úrræði vanta á íslandi. Það sýnir sig að ef börn eru ekki gripin þegar þau upplifa áföll í æsku líkt og að missa náin ástvin geta þau lent á vegg síðar meir og þetta er í raun forvörn fyrir það.“

Hún lofar einstakri stemningu í lóninu á þriðjudaginn.

„Við erum svo heppin að hafa liðsauka frá DJ Dóru Júlíu sem er stemningskona með meiru auk GDRN og Sölku Sól sem munu með sínum undirfögru röddum skapa hugljúfa og ógleymanlega stund í þágu góðs málefnis. Sorgarmiðstöðin vinnur einstaklega faglegt starf og var aldrei spurning að gera þetta með einhverjum öðrum aðilum.“


Tengdar fréttir

Á Íslandi missa um 100 börn foreldri í ár

Á hverju ári verða um 100 börn á Íslandi fyrir því þunga áfalli að missa foreldri. Á árunum 2009–2018 misstu 1.007 börn á Íslandi foreldri samkvæmt tölum Hagstofunnar. Á því tímabili létust 649 foreldrar barna undir 18 ára aldri; 448 feður og 201 móðir. Um 40% foreldranna létust úr krabbameinum. Það er sárt til þess að hugsa á hverju ári upplifi svo mörg börn þá sáru sorg að missa mömmu sína eða pabba.

Leggja fram frum­varp um sorgar­leyfi eftir and­lát maka

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sorgarleyfi. Í frumvarpinu felst að einstaklingar sem misst hafa maka og eru foreldrar barna yngri en 18 ára fái heimild til að taka allt að sex mánaða leyfi frá störfum og greiðslur frá Vinnumálastofnun á meðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×