Fótbolti

Mbappe meiddur af velli þegar PSG vann stór­sigur

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mbappe liggur í grasinu í leiknum í kvöld.
Mbappe liggur í grasinu í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

PSG vann í kvöld 4-0 stórsigur gegn Marseille þegar liðin mættust í frönsku deildinni í dag. Liðið er nú í þriðja sæti deildarinnar.

Stórlið PSG hefur misstigið sig í nokkur skipti í byrjun tímabils. Liðið gerði jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum og tapaði svo gegn Nice eftir tvo góða sigra.

Í dag var komið að stórleik þegar Marseille mætti í heimsókn. Það var hins vegar engin spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í kvöld. Heimamenn tóku völdin strax í upphafi og unnu að lokum öruggan sigur.

Achraf Hakimi skoraði fyrsta markið á 8.mínútu og Randal Kolo Muani bætti öðru marki við áður en fyrri hálfleikur var á enda. Í síðari hálfleik skoraði Goncalo Ramos tvö mörk og innsiglaði 4-0 sigur.

Með sigrinum lyftir PSG sér upp í þriðja sætið en Marseille er í því sjöunda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×