Innlent

Ó­lík­legt að Kristján nái að veiða allan kvótann úr þessu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kristján Loftsson, til vinstri, má veiða allt að 161 langreyði. Sverrir Daníel Halldórsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, til hægri, telur ólíklegt að hann nái því vegna lélegs veðurs á þessum árstíma og lélegra birtuskilyrða.
Kristján Loftsson, til vinstri, má veiða allt að 161 langreyði. Sverrir Daníel Halldórsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, til hægri, telur ólíklegt að hann nái því vegna lélegs veðurs á þessum árstíma og lélegra birtuskilyrða. Samsett

Líffræðingur við Hafrannsóknarstofnun telur ólíklegt að Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., nái að veiða þann hval sem hann má veiða samkvæmt leyfi. Veður og birtuskilyrði muni hafa áhrif. Hann segir langreyðar ekki í útrýmingarhættu á norðurhveli jarðar. 

„Það er eitthvað farið að minnka núna en aðalmálið á þessum tíma er veður, sem hamlar veiðum, og birta. Þetta eru orðnir stuttir dagar. En það er hellingur af hval á svæðinu, eða yfirleitt á þessum ársíma,“ segir Sverrir Daníel Halldórsson, líffræðingur við Hafrannsóknarstofnun, og að helstu fæðisvæðin séu við vestanvert og suðvestanvert landið.

Hann segir að misjafnt sé hvenær hvalirnir færa sig suður á bóginn en að það sé oft í lok ágúst en geti verið alveg fram í október.

„En það sjást langreyðar allt árið,“ segir Sverrir en að erfitt sé að meta fjölda við Íslandsstrendur á veturna því ekki séu gerðar veturtalningar vegna aðstæðna á hafi.

Kristján Loftsson hefur heimild til að veiða að hámarki 161 langreyðar árlega samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, setti um veiðarnar árið 2019. Ný reglugerð var sett í síðustu viku, af matvælaráðherra, um veiðarnar og tilhögun þeirra. 

„Það er ólíklegt að hann nái því úr þessu. Það er útilokað út af veðurskilyrðum,“ segir hann en erfitt að segja til um það hverju hann nær.

Verða allt að 100 ára

Hann segir að í Norður-Atlantshafi séu alls um 35 þúsund langreyðar. Hann segir langreyðar oft vera allt að þrjú saman í hóp. Það geti verið fjölskylda eða bara dýr sem hafi hópað sig saman. Dýrin verði allt að 100 ára gömul.

„Þetta er svipuð lífslengd og hjá manninum. Þær verða kynþroska við átta ára aldur og það er svona annað hvert ár sem þær bera, að meðaltali. Alveg fram undir það síðasta. Það virðist ekki vera nein tíðahvörf,“ segir Sverrir léttur.

Ekki dýr í útrýmingarhættu

Hann segir mikilvægt að fólk viti að á norðurhveli sé staða stofns langreyða ekki sú sama og á suðurhveli. Þær séu ekki í útrýmingarhættu á norðurhveli jarðar en á suðurhveli sé stofninn í viðkvæmri stöðu. Því tali sum samtök um að langreyðar séu í útrýmingarhættu. Sverrir telur rétt að aðgreina stofn á suður- og norðurhveli því stofninn sé mjög misjafnt á þessum tveimur stöðum.

„Þetta eru ekki dýr í útrýmingarhættu en vinnubrögðin eru þannig hjá CITES að þau setja alla tegundina undir sama hátt þótt að aðstæður stofna séu misjafnar á ólíkum stöðum,“ segir Sverrir en CITES er alþjóðasamningur um verslun með villt dýr og plöntur í útrýmingarhættu sem bannar viðskipti með hvalaafurðum milli flestra þjóða heims. Ísland hefur gert fyrirvara við viðauka með samningnum vegna þeirra tegunda sem veiddar eru við Íslandsstrendur.

Spurður hvað honum finnist um mótmælin um borð í hvalveiðiskipunum segir hann ekkert við þau koma á óvart en að það komi heldur ekki á óvart að veðrið hamli veiðum, miðað við árstíma.

„Það er búið að vera leiðindaveður á miðunum og spáir ekkert vel.“


Tengdar fréttir

Furðar sig á að sjúkra­lið taki við skipunum frá lög­reglu

Stuðningsmenn tveggja kvenna sem eru hlekkjaðar við tunnur í möstrum hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn segjast hafa hringt í ítrekað á sjúkrabíl vegna ástands annarrar þeirra en án árangurs í morgun. Vinur þeirra furðar sig á því að sjúkralið svari til lögreglunnar.

„Ef þær koma niður fá þær að drekka og borða“

Lögreglan segist hafa boðið mótmælendum á hvalveiðiskipum Hvals bæði mat og drykk, en aðeins ef þær koma niður. Hann segir lögregluna ekki með neinar aðgerðir skipulagðar vegna mótmælanna. Skipin halda ekki út til veiða í dag vegna veðurs. 

Bein út­sending: Mót­mælendurnir enn í tunnunum

Tveir mótmælendur sem hlekkjuðu sig fasta við tunnur á mastri tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun er komnur úr skipunum. Vísir fylgist með málinu í beinni útsendingu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×