Innlent

Lög­regla hafi bakað ríkinu bóta­skyldu

Árni Sæberg og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Katrín Oddsdóttir lögmaður telur lögreglu hafa bakað ríkinu bótaskyldu með framgöngu sinni í morgun.
Katrín Oddsdóttir lögmaður telur lögreglu hafa bakað ríkinu bótaskyldu með framgöngu sinni í morgun. Vísir/Arnar

Katrín Oddsdóttir lögmaður telur að lögreglan geti verið að baka íslenska ríkinu bótaskyldu með framgöngu sinni í morgun. Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, segir að stuðningsfólk mótmælanna hafi nú barist fyrir því í fleiri klukkustundir að gefa mótmælendunum vatn.

Greint hefur verið frá því að í morgun hafi lögregla tekið vatnsflösku af öðrum tveggja mótmælenda, sem komu sér fyrir í tunnum Hvals 8 og Hvals 9 í eldsnemma í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur neitað að tjá sig um aðgerðina og beðist undan viðtali í allan dag.

Myndskeið af aðgerðum lögreglu má sjá hér að neðan:

„Tjáningarfrelsi er stjórnarskrárvarið og hluti af því er réttur til að mótmæla og í þeim rétti felst auðvitað réttur til borgaralegrar óhlýðni, sem er að eiga sér stað í möstrunum núna. Það þýðir að þær brjóta viljandi einhverjar reglur, þessar konur, en taka líka algjörlega afleiðingunum af því. Lögreglan má hins vegar aldrei ganga lengra í sínum aðgerðum en þörf krefur, það stendur einfaldlega í þrettándu grein lögreglulaga, meðalhófsreglunni svokölluðu,“ segir Katrín Oddsdóttir í samtali við fréttastofu.

Lögreglan komin á hálan ís

Katrín telur að með því að taka bakpoka og síma af annarri konunni hafi lögregla brotið gegn meðalhófsreglunni. 

„Ég held að þetta hefði ekki gerst ef fjölmiðlar hefðu verið á svæðinu, en þetta gerðist eldsnemma í morgun. Nú er staðan sú að hún hefur ekki drukkið í einhverjar tíu klukkustundir og borgarar sem reyna að gefa henni mat fá ekki að fara upp til hennar og lögreglan neitar líka að gefa þeim vatn og mat. Ég held að lögreglan sé þarna komin á hálan ís. Ég myndi bara spyrja hvort þau sem ábyrgð bera innan lögreglunnar, yfirmenn og að lokum dómsmálaráðherra, hvort það ætti ekki virkilega að skoða hvort það sé ekki ástæða til að rétta kúrsinn strax í þessu máli,“ segir Katrín en rætt var við hana fyrr í dag og nú er staðan sú að konan hefur hvorki fengið vott né þurrt í að verða fjórtán klukkustundir.

Eðlileg viðbrögð örvæntingarfullra borgara

Katrín segir að borgaraleg óhlýðni, rétt eins og konurnar beita í möstrunum, sé viðurkennd aðferð til þess að berjast gegn því sem fólk telur vera ranglæti.

„Við erum ekki einu sinni bara að tala um ranglát lög hér á Íslandi eins og var til dæmis í baráttu Martins Luthers King þar sem þessi aðferð var mikið notuð. Heldur erum við hreinlega að tala um það að þarna standi til að fara á veiðar, sem þó liggur fyrir að okkar æðstu stjórnvöld segja að séu brot á lögum um velferð dýra. Þannig að ég get nú ekki séð að þessar aðgerðir sem konurnar eru að beita með því að vera þarna algjörlega vatns- og matarlaus, önnur þeirra, uppi í möstrum sé nokkuð annað en bara eðlileg viðbrögð örvæntingarfullra borgara sem hafa sterkar skoðanir á þessum tiltekna málaflokki.“


Tengdar fréttir

Í hungur­verk­falli vegna á­kvörðunar Svan­dísar

Norskur dýravelferðarsinni er í hungurverkfalli eftir að matvælaráðherra aflétti hvalveiðibanni. Hann segir fátt geta stoppað sig. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir forstjóra Hvals hf. þurfa að vanda sig verulega þegar haldið verður til veiða síðar í vikunni. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×