Innlent

Alls kyns foktjón í fyrstu haustlægðinni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá Keflavíkurhöfn í kvöld.
Frá Keflavíkurhöfn í kvöld. aðsend

Annasamt hefur verið hjá björgunarsveitum í kvöld á meðan fyrsta haustlægðin gengur yfir með miklu hvassviðri. Stærsta verkefnið var á hálendinu þar sem sækja þurfti örmagna göngumann. 

Jón Þór Víglundsson er upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.Landsbjörg

Hefðbundin fokverkefni, segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

„Trampólín eru að fjúka, byggingarefni, einhverjir ferðavagnar eru að snúast og fara á hliðina,“ segir Jón Þór í samtali við fréttastofu. Enn hafi ekkert stórtjón orðið.

Annasamt hefur verið hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum. Í kvöld voru tónleikar Ljósanætur haldnir ásamt kjötsúpuveislu. Að sögn Haraldar Haraldssonar aðgerðarstjóra hjá björgunarsveitinni Suðurnes hefur dagskráin gengið áfallalaust fyrir sig. Fregnir bárust af því í kvöld að tæki á tívolísvæði hátíðarinnar hafi fokið um koll. 

Fyrsta haustlægðin mætti af krafti.Björgunarsveitin Sigurvon
Sinna þurfti fjölda verkefna í Reykjanesbæ.Björgunarsveitin Sigurvon

„Það hafa verið þónokkuð af verkefnum á höfuðborgarsvæðinu í kjölfarið en veðrið á Suðurnesjum hefur gengið niður á meðan.“ 

Tré hafi fallið í Vesturbæ á garðskúr, ásamt hefðbundnu trampólín- og byggingarefnafoki.

„Þetta er alveg Þorlákshöfn, Akranes, Borganes, Suðurnes, Hvolsvöllur. Hústjöld hafa fokið og ýmislegt fleira.“

Örmagnaðist á hálendinu

Stærsta verkefni björgunarsveita var hins vegar á hálendinu. Sækja þurfti göngumenn á leið þeirra í Jökultungum, milli Hrafntinnuskers og Álftavatns.

„Einn örmagnaðist þar. Hann hafði verið nokkra daga á göngu, sennilega í erfiðari aðstæðum en gert var ráð fyrir. Þeir stoppuðu í Jökultungunum og síðasti hálendisvaktahópurinn okkar er að detta til þeirra, eins langt og þau komast á bíl og labba nú síðasta spottann,“ segir Jón Þór. 

„Spáin gerði alveg ráð fyrir þessu, þetta er bara að ganga eftir.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×