Lífið

Söng um Draumaprinsinn og giftist sínum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sólbjört og Einar gengu í heilagt hjónaband í Vestmannaeyjum liðna helgi og héldu heljarinnar veislu.
Sólbjört og Einar gengu í heilagt hjónaband í Vestmannaeyjum liðna helgi og héldu heljarinnar veislu.

Einar Stefánsson, markaðs- og kynningarstjóri hjá Píeta samtökunum, trommuleikari Hatara og gít­ar­leik­ari Vakar gekk að eiga Sólbjörtu Sigurðardóttur flugfreyju, dansara og leiklistarnema við hátíðlega athöfn um liðna helgi í Vestmannaeyjum.

Matthías Tryggvi Haraldsson söngvari Hatara og athafnastjóri hjá Siðmennt gaf hjónin saman. Þegar þau höfðu innsiglað ást sína með kossi birtust liðsmenn Bjartra sveiflna á sviðinu og spiluðu ástarsmellinn „Þú fullkomnar mig“ úr smiðju Sálarinnar.

Athöfnin fór fram í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum en svo færðu veislugestir sig yfir á Slippinn. Dansinn dunaði síðar um kvöldið þar sem músík var spiluð inn í rauða nóttina. Þá steig brúðurin á svið og söng lagið Draumaprinsinn með Röggu Gísla, með miklum tilþrifum.

Sólbjört klæddist sérsaumuðum brúðarkjól.Sólbjört.
Brúðhjónin á góðri stundu.Íris Tanja.
Íris Tanja og Sólbjört erum miklar vinkonur og starfa meðal annars báðar sem flugfreyjur hjá Icelandair.Íris Tanja.
Sólbjört á leið í svarta glæsibifreið að athöfn lokinni.Sólbjört
NýgiftSólbjört
Hjónin í sveiflu.Sólbjört.

Gæsun og bleik hárkolla

Vinkonur Sólbjartar komu tilvonandi brúðurinni á óvart í byrjun júní með heljarinnar gæsunardegi. Þar á meðal Íris Tanja Flygenring leikkona og Katla Njálsdóttir söngkona og leiklistarnemi. 

Sólbjört klæddist fögrum kjól frá hönnuðinum Hildi Yeomen og bleikri hárkollu með slör. Dagurinn virtist hafa fallið vel í kramið hjá Sólbjörtu sem birti myndir frá deginum á Instagram.

Sólbjört klæddist Yeoman kjól og blekri hárkollu í gæsuninni.Sólbjört.
Gæsahópurinn bar hvíta hárkollur en Sólbjört bleika.Sólbjört.
Gæsunardagurinn var fjölmennur.Sólbjört.

Parið hefur verið saman um nokkurra ára skeið. Þau trúlofuðu sig á sjálfan Valentínusardaginn 2022. Saman eiga þau eina dóttur, Ylfu Björk.

Bæði eru þau hluti af hljómsveitinni Hatara sem tók þátt fyrir Íslands hönd í Eurovison árið 2019 þegar keppnin var haldin í Tel Aviv í Ísrael. 


Tengdar fréttir

Ástin sigraði þegar Sólbjört og Einar trúlofuðu sig

Ástin virðist hafa sigrað en dansarinn Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson sem er trommarinn í Hatara og gítarleikari Vök voru að trúlofa sig. Spurningin var borin upp á sjálfan Valentínusardaginn svo rómantíkin hefur verið allsráðandi hjá þeim á deginum.

„Hreyfingar geta sagt svo miklu meira en orð“

Sólbjört Sigurðardóttir, einn þriggja dansara í atriði Hatara, segir að líkamshreyfingar geti sagt miklu meira en það sem hægt er að færa í orð og því leggja liðsmenn Hatara ríka áherslu á hið sjónræna í atriðinu því danshreyfingarnar eru hluti af frásögninni. Danshreyfingarnar geti ýmist verið í samhljómi við tónlistina og á skjön við hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×