Innlent

Tík bjargað úr klettum

Árni Sæberg skrifar
Tíkin Mýsla er komin aftur til eiganda síns.
Tíkin Mýsla er komin aftur til eiganda síns. Landsbjörg

Síðdegis í gær voru tíkin Mýsla og eigandi hennar á ferð um Einstakafjall þar sem eigandi Mýslu var að taka ljósmyndir. Á meðan hann tók myndir hljóp Mýsla frá honum og hvarf niður fyrir klettabrún.

„Einstakafjall er á milli Vöðlavíkur og Sandvíkur á Austurlandi. Þar sem eigandi Mýslu er að ljósmynda þá fegurð sem Austfirsku alparnir bjóða upp á, hleypur Mýsla frá honum og hann sér hana hverfa niður fyrir klettabrún. Eigandi Mýslu reyndi að ná til hennar, en þegar hann fann að hann var að komast í sjálfheldu, hörfaði hann upp á brún og óskaði eftir aðstoð,“ segir í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Björgunarsveitir frá Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupstað hafi farið á vettvang og tíkin sést fljótlega í klettarák, um sjötíu metrum fyrir neðan brún, þaðan sem hún gat sig hvergi hreyft. Mýsla hafi þá þvælst eitthvað eftir klettasillum og hugsanlega fallið eitthvað niður.

Fjöldi björgunarsveitamanna kom að aðgerðunum í gær.Landsbjörg

Björgunarsveitir hafi sett upp fjallabjörgunarbúnað á brúninni, en það hafi verið eina leiðin til að komast að Mýslu. Björgunarmaður hafi svo sigið niður þessa sjötíu metra til Mýslu, sem hafi verið vægast sagt mjög fegin að sjá einhvern á leið til hennar, svo fegin að hún hafi reynt að komast upp klettana til björgunarmanns þegar hann var alveg að komast niður til hennar.

„Þegar björgunarmaður var komin á silluna til Mýslu og Mýsla hafði heilsað að hundasið, var henni boðið far upp á brún í bakpoka björgunarmanns, sem hún þáði. Ferðin upp gekk áfallalaust og var Mýsla býsna glöð að komast upp á brún og hitta eiganda sinn aftur, eftir að hafa mátt dúsa á klettasillunni í einhverja klukkutíma.“

Alls hafi 23 björgunarsveitarmenn komið að aðgerðinni, sem lauk farsællega.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×