Innlent

Skjálfti gær­kvöldsins „eins og skrattinn úr sauðar­leggnum“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Vísir/Sigurjón

Jarðeðlisfræðingur segir afar óvenjulegt að jafn stórir jarðskjálftar og sá sem reið yfir í gærkvöldi fylgi gosbyrjunum. Þrátt fyrir það séu ekki teikn á lofti um að dregið hafi úr líkum á eldgosi.

Jarðskjálftinn sem reið yfir rétt fyrir klukkan hálft ellefu í gærkvöldi var sá stærsti síðan hrinan á Reykjanesskaga hófst fyrir sex dögum síðan. Hann reyndist 5,2 að stærð, átti upptök sín einn og hálfan kílómetra suðaustur af Keili, og fannst vel víða um landið.

Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir heldur óalgengt að svo stórir skjálftar fylgi gosbyrjunum.

„Menn áttu nú svona frekar von á því að skjálftavirknin væri að hægja á sér, þannig að þessi stóri skjálfti kemur svolítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum, satt að segja,“ segir Páll.

Helst komi á óvart hve skjálftinn var nálægt svæðinu þar sem talið er að kvikugangurinn hreyfist nú um undir yfirborðinu.

„Við þekkjum náttúrulega svo margar útgáfur af þessari atburðarás, að það ætti ekki að koma neinum á óvart að það verði stór gikksjálfti. Það er nú partur af sviðsmyndunum sem hafa verið dregnar upp.“

Ekki sé hægt að draga haldbærar ályktanir um líkurnar á eldgosi út frá skjálftanum.

„Ekki í neinum smáatriðum. Þetta er bara einn af atburðunum í langri atburðarás.“

Nokkuð hafi hægst á atburðarásinni frá stóra skjálftanum.

„Ég held að við verðum nú eiginlega að segja að eftir því sem gangurinn heldur lengur áfram, þeim mun meira aukast líkurnar á að það endi með gosi, meðan það er ekki alveg stopp,“ segir Páll.


Tengdar fréttir

Segir jörðina liðast í sundur á Reykja­nesi

Bandarískur áhrifavaldur, sem er búsettur hér á landi, segir jarðskjálfta á Reykjanesi í gær vera það ógnvænlegasta sem hann hefur upplifað á landinu. Þá deilir hann mynd af stærðarinnar holu sem myndaðist á vegi á svæðinu.

Stærsti skjálftinn til þessa

Öflugur jarðskjálfti reið yfir um klukkan 22:23 í kvöld skammt frá Keili og fannst víða um land. Skjálftinn virkaði ansi stór og varði nokkuð lengi. Yfirfarin stærð hans er 5,2 og er hann sá stærsti sem mælst hefur í skjálftahrinunni á Reykjanesi sem hófst 4. júlí. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×