Taka upp hlaðvarp á meðan börnin sofa Garpur I. Elísabetarson skrifar 9. júlí 2023 09:02 Þorsteinn og Marteinn hittust á fæðingardeildinni og ákváðu í kjölfarið að byrja með hlaðvarp. aðsend Nú er sólin loksins búin að frelsa sig úr einokun landsbyggðarinnar og byrjuð að skína á suðvesturhornið við mikinn fögnuð sólþyrstra höfuðborgarbúa.
Það má sjá stuttermaklædda hlaupara útum allt með bros á vör en það hefur þó borið á því undanfarið að hlauparar landsins hafa verið óvenju brosmildir á hlaupum löngu áður en góða veðrið fór að láta á sér kræla, því í byrjun sumars birtist nýtt hlaðvarp: Út að hlaupa. Þátturinn er í umsjón tveggja hlaupara, Þorsteins Roy Jóhannssonar og Marteins Urbancic sem eru þekktar stærðir í hlaupasenunni hér á landi, þá sérstaklega Þorsteinn sem birtist fyrir örfáum árum á hlaupasviðið eins og stormsveipur og hefur verið á palli í flestum hlaupum sem hann tekur þátt í. Þorsteinn hefur tileinkað sér orðin: sá vinnur sem mest hefur gaman og er því auðvelt að eiga marga sigurvegara úr öllum hlaupum. Þorsteinn og Marteinn eru þekktar stærðir í hlaupasenunni hér á landiaðsend Alvöru aulahúmor á ferðinni En þeir eru þó þekktir fyrir meira en hlaup, því þeir sem hafa gaman af alvöru góðum aulahúmor og orðaleikjum hafa fengið mikið fyrir lítið þegar kveikt er á hlaðvarpinu þeirra. Þeir taka fyrir keppnishlaup sumarsins, þó aðalega utanvegakeppnishlaup en tala þó einnig almennt um hlaup hvar á að byrja, hvernig á að koma sér á stað, hvað á að hafa meðferðis í hlaup, hvað skal varast og fleira sem ætti að koma sér vel þegar pælt er í að koma sér út að hreyfa sig. Vinir á fæðingardeildinni Þorsteinn og Marteinn kynntust þegar þeir voru í fótbolta í ÍR en þeirra vinskapur var þó fyrir alvöru innsiglaður þegar þeir hittust á fæðingardeildinni að taka á móti börnum sínum. Marteinn flýgur í dag fyrir Icelandair og Þorsteinn er að fara í framhaldsnám í sjúkraþjálfun. Þegar þeir eru ekki að sinna börnum, fljúga eða hlaupa, þá setjast þeir niður í barnaherbergi dóttur Þorsteins og taka upp hlaðvarp og ræða allt sem viðkemur hlaupunum. Það er meira að segja það heimilislegt hjá þeim að það getur verið að það þurfi að taka sér pásu frá hlaupatali til að bjóða góða nótt. Strákarnir taka upp hlaðvarp þegar börnin sofaAðsend Bugaður Villi á Laugaveginum og kærasta í Kenya Þeir fengu hlauparann Nick Gísla í stórskemmtilegt spjall en hann var þá nýkominn heim úr hlaupaferð í Kenýa þar sem hann lenti í allskyns ævintýrum og svo fengu þeir Vilhjálm Frey Hallsson, betur þekktur sem Villi úr Steve Dagskrá hlaðvarpinu en hann á stórskemmtilega og átakanlega sögu úr sínu fyrsta Laugavegshlaupi. Í þættinum fara þeir yfir Laugavegshlaupið, sem er lang þekktasta utanvegahlaup landsins og er nokkurskonar árshátíð utanvegahlaupara landsins. Í ár eru langflestir, ef ekki allir sterkustu hlauparar landsins skráðir og verður mjög spennandi að fylgjast með þann 15. júlí þegar ræst verður af stað mörghundruð hlaupurum úr Landmannalaugum sem ætla að hlaupa í einum rykk yfir í Þórsmörk eða um 53 kílómetra. Kynntist kærustunni á hlaupum Í síðasta þætti var enginn annar en hinn norski Stian Angermund, tvöfaldur heimsmeistari í utanvegahlaupum, gestur hjá félögunum. Þorsteinn keppti einmitt við hann þegar þeir hlupu á HM í utanvegahlaupum í Austuríki júní á þessu ári. Þeir fóru yfir feril Stian og spjölluðu þeir um allt sem við kemur hlaupum. Stian er mikill fjölskyldumaður en hann kynntist konunni sinni á hlaupum þegar þau kepptu árið 2014 og eiga þau dóttur í dag og er það alveg smá pússluspil fyrir hann að halda sér í efstu hillu í hlaupum. Hann talar þó um mikilvægi þess að eyða tíma með fjölskyldu sinni en hann hætti í vinnunni til að einbeita sér að hlaupunum og fór að þjálfa aðra hlaupara til að afla sér tekna á móti. Hann æfir þess vegna á hefðbundnum vinnutíma til þess að getað sinnt fjölskyldu lífinu til jafns við hlaupin.
Hlaup Mest lesið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Lífið Fleiri fréttir Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Sjá meira