Lífið

Dó næstum því og er edrú í dag

Máni Snær Þorláksson skrifar
Tatum O'Neal (til vinstri) hefur lengi glímt við fíknina en er edrú í dag.
Tatum O'Neal (til vinstri) hefur lengi glímt við fíknina en er edrú í dag. Getty/Matt Winkelmeyer

Bandaríska leikkonan Tatum O'Neal, sem var yngst til að vinna Óskarsverðlaun, hefur barist við fíknina í áratugi en hún segist hafa misst tökin í kórónuveirufaraldrinum árið 2020. Þá hafi hún tekið of stóran skammt af ýmsum lyfjum og endað í dái í sex vikur.

„Ég dó næstum því,“ segir hún í opinskáu viðtali við People. Einnig er rætt við elsta son leikkonunnar, hinn 37 ára gamla Kevin McEnroe, í viðtalinu þar sem hann minnist símtalsins þar sem þeim var tilkynnt hvað hafði gerst. „Símtalið sem við vorum alltaf að bíða eftir,“ er haft eftir honum. 

Kevin segist hafa óttast það ásamt systkinum sínum að móðir þeirra myndi aldrei geta gengið eða talað aftur, ef hún myndi yfir höfuð vakna úr dáinu.

Hefur lengi reynt að vera edrú

Þegar O'Neal vaknaði úr dáinu eftir sex vikur gat hún ekki talað eða átt í neinum samskiptum. „Hún vissi ekki hvar hún var,“ segir sonur hennar. Á þeim tíma hafi heimsfaraldurinn gert það að verkum að fjölskyldan gat ekki heimsótt hana þegar hún vaknaði.

Eftir að hún vaknaði tók við endurhæfing og reglulegir sálfræðitímar. Ásamt því mætir hún á tólf spora fundi.

„Ég hef reynt að verða edrú allt mitt líf,“ segir hún. Kevin segir að sem móðuir hafi hún alltaf viljað vera edrú en að hún hafi aldrei viljað það fyrir sjálfa sig. Nú taki hún því hins vegar fagnandi að vera edrú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×