Fótbolti

Kristall Máni byrjaði í tapi Rosen­borg

Smári Jökull Jónsson skrifar
Kristall Máni fékk tækifæri í byrjunarliði Rosenborg í dag.
Kristall Máni fékk tækifæri í byrjunarliði Rosenborg í dag. RBK.NO

Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Rosenborg sem tapaði á útivelli gegn Álasund í dag. Rosenborg er aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.

Töluvert er síðan Kristall Máni byrjaði leik hjá Rosenborg en þjálfari liðsins Kjetil Rekdal var sagt upp á dögunum. Kristall fékk tækifærið í byrjunarliðinu í dag en Rosenborg hefur gengið bölvanlega á tímabilinu.

Kristall Máni lék fyrri hálfleikinn í dag en fór af velli í hálfleik í stöðunni 0-0. Eina mark leiksins kom á 47. mínútu og var það Markus Karlsbakk sem skoraði það fyrir heimaliðið Álasund. Eftir tapið er Rosenborg aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni. Ísak Máni Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Rosenborg. 

Brynjar Ingi Bjarnason var ónotaður varamaður í Liði Ham Kam sem tapaði 2-1 gegn Brann. HamKam er í neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×