Lífið

Stjörnu­lífið: Glæsi­brúð­­kaup fegurðar­­drottningar og „heitasti rassinn í sumar­frí“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sumarið er komið og er um að gera að njóta.
Sumarið er komið og er um að gera að njóta.

Liðin vika einkenndist af sumarfríi landsmanna, ekki síst hjá stjörnum landsins. Sólríkar myndir af erlendum slóðum eru áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana. Tískudrottningin Elísabet Gunnarsdóttir fór í fjölskyldufrí til Spánar og leikkonan Kristín Pétursdóttur til Ítalíu.

Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og Vignir Þór Bollason kírópraktor gengu í það heilaga síðastliðinn laugardag. Ragga Hólm, rappari, upplifði æskudrauminn þegar hún sá poppgoðsögnina Beyoncé á sviði í Varsjá í Póllandi. Þá fór tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í veiði með syni sínum í Laxá í Aðaldal. 

Gefst aldrei upp

Athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir tók þátt í herferð ljósmyndarans Kára Sverrissonar, Listin að vera ég. 

„Kjarkurinn og drifkrafturinn er ofurkrafturinn minn. Staðfestan á því að aldrei gefast upp, snúa raunum upp í sigra og nýta örin til þess að lyfta sjálfri mér og öðrum upp.

Það sem gerir mig hamingjusama eru morgunkossar frá öllum strákunum mínum, góð tónlist, sjá hugmyndirnar mínar verða að veruleika, elska og vera elskuð á sama tíma,“ skrifar Camilla við mynd af sér.

Brúðkaupsafmæli á fótboltamóti

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og eiginkona hans, Hafdís Jónsdóttir, fögnuðu sex ára brúðkaupsafmæli sínu á Orkumótinu í Vestmannaeyjum um helgina, þar sem elsti sonur þeirra var að spila með Gróttu.

Fegurðardrottning gift kona

Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og Vignir Þór Bollason kírópraktor gengu í heilagt hjónaband um helgina. Athöfnin var haldin í Háteigskirkju í Reykjavík þar sem séra Guðni Már Harðarson gaf þau saman. 

Að athöfn lokinni var haldið í glæsilega skreyttan sal á veitingastað Sjálands í Garðabæ þar sem ástinni var fagnað langt fram eftir kvöldi undir veislustjórn Evu Ruzu Miljevic.

Eftir veisluna birti Eva mynd af sjálfri sér í hringrásinni (e. story) á Instagram með textanum, heitasti rassinn er loksins kominn í mjög langþráð sumarfrí.

Eva Ruza

Fyrrverandi fegurðardrottningar

Manúela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi Ungfrú Íslands og framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Miss Universe Iceland/Ungfrú Ísland fagnaði hjónunum um helgina.

Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og Ung­frú Íslands 2013, var meðal gesta og mætti í glæsilegum bleikum kjól.🫶🏻

Feðgar í Laxveiði

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og sonur hans, Brynjar Úlfur Morthens, fóru í laxveiði í Laxá í Aðaldal þar sá síðarnefndi veiddi sinn fyrsta lax í umræddri á. 

Pottapartý á Ítalíu

Kristín Pétursdóttir, áhrifavaldur og flugfreyja, er stödd í fríi með fjölskyldunni á Ítalíu þar sem hún slakaði á í heitum potti með drykk við hönd.

Hafmeyjudagur og sesarsalat

Sunneva Einars, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna ,virðist hafa átt ljúfan sólardag við rönsku rívíeruna í vikunni. Sunneva er stödd í Frakklandi með kærastanum Benedikt Bjarnasyni ásamt vinahópi þeirra.

Bestu vinkonur í sólinni

Áhrifavaldurinn Pattra Sryanonge naut íslensku veðurblíðunnar með vinkonu sinni og börnum um helgina. 

Gaf tónleikunum tíu í einkunn

Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Hólm lét æskudrauminn rætast þegar hún sá bandarísku poppdrottninguna Beyoncé með berum augum á tónleikum höfuðborg Póllands, Varsjá.

Ítalía betri fyrir utan spillingu

Edda Falak baráttukona er ánægð með lífið á Ítalíu þar sem hún er stödd í fríi með kærastanum og glímukappanum Kristjáni Helga Hafliðasyni. 

Ráðherra í Ásbyrgi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, naut veðurblíðunnnar í Ásbyrgi með eiginkonu sinni, Þóru Margréti Baldvinsdóttur um helgina.

Pálmatré og blúnduföt

Tískudrottningin Elísabet Gunnars er mætt til Valencia á Spáni og birti mynd af sér í smörtu, hvítu blúndudressi með yngstu dóttur sinni og með kaffibolla í hönd. 

Töff í bleiku

Kírópraktorinn Gummi kíró klæddist smart bleikum buxum á góðum sumardegi í vikunni. Óhætt er að segja að Gummi sé með puttann á púlsinum hvað varðar nýjustu tísku. 

Gummi Kíró leggur línurnar fyrir sumar­tískuna í ár

Þakklátur viðtökunum

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson þakkar viðtökurnar á nýrri og ritskoðaðri útgáfu af laginu Blautt dansgólf sem kom út á dögunum.

Flottir feðgar

Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin birti fallega feðgamynd. 

Brúðkaupsgleði

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skemmti sér í brúðkaupi með vinkonum sínum um helgina. 

Ítalskur draumur

Dansarinn og raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir er komin heim úr fríu á Ítalíu og segist langa aftur. Af myndum að dæma var ferðin draumi líkust.

Súkkulaðistrákur í sólinni

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, varði síðastliðinni viku á grísku draumaeyjunni Mykonos með kærustunni Friðþóru Sigurjónsdóttur, líkt og Vísir greindi ítarlega frá á dögunum.

Dóra Dúna og Guðlaug nefndu stúlkuna

Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir og Guðlaug Björnsdóttir, markaðsstjóri Viss, nefndu yngstu dótturina um helgina. Stúlkan fékk nafnið Ragnhildur Sesselja Guðlaugardóttir. Hún er fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Guðlaug þrjú börn.

Danskt sumarfrí

Erna Hrund Hermannsdóttir, förðun­ar­fræðing­ur­ og vörumerkja­stjóri, og kærastinn hennar, Jón Kristó­fer Sturlu­son, eru stödd í Danmörku í sumarfríi með börnum sínum, nánar tiltekið í Marielyst. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×