Var vöruð við Íslendingum eftir að hún vann Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. maí 2023 12:00 Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands í Eurovision hlakkar til kvöldsins. Hún verður sjöunda á svið. Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands í Eurovision er gríðarvel stemmd fyrir undankvöld keppninnar sem fram fer í Liverpool í kvöld. Hún segist ekkert hugsa út í veðbanka og hafi raunar ekki hugmynd um hvernig henni sé spáð. Þá hafi hún eingöngu fundið fyrir stuðningi frá Íslendingum þrátt fyrir viðvaranir um annað.
Stóra stundin nálgast óðfluga. Diljá stígur sjöunda á svið í Eurovision-höllinni í Liverpool í kvöld og við fáum úr því skorið hvort lag hennar Power verði meðal tíu framlaga sem komast áfram á úrslitakvöldið á laugardag. Eurovísir hitti Diljá að loknu lokarennsli í Liverpool í gærkvöldi. Diljá steig þar á svið fyrir fullum sal en einnig fyrir dómnefndir keppninnar. Þó að aðeins símakosning gildi í kvöld verður það rennslið í gærkvöldi sem dómarar leggja til grundvallar við mat á lögunum sem komast áfram í úrslit. Þá gilda atkvæði dómnefndar og símakosning til jafns, 50/50. Viðtalið við Diljá í fjórða þætti Eurovísis byrjar á mínútu 2:03. Diljá ræðir meðal annars tæknilega örðugleika á ögurstundu, stuðninginn frá Íslandi, veðbanka og fundinn við Loreen. Gerir sitt besta sama hvað Tæknilegir örðugleikar settu örlítið strik í reikning Diljár á rennslinu. Snúningspallur sem hún stígur upp á sat pikkfastur, eins og Eurovísir greindi frá í gærkvöldi. En því verður kippt í lag og Diljá segist raunar aldrei hafa sungið Power jafnvel og í gær. Þegar þetta er ritað situr Diljá í 28. sæti í veðbönkum og hefur þannig hoppað upp um eitt sæti nú í aðdraganda undanúrslitanna. En 28. sætið myndi ekki skila henni áfram á lokakvöldið. Sjálf veltir Diljá sér ekkert upp úr slíku. „Nei, ekki neitt. Ég geri mér grein fyrir að það breytir gjörsamlega engu hvernig ég ætla að performa eftir því hvernig mér er spáð. Ég geri alltaf mitt besta, hvort sem mér er spáð fyrsta eða seinasta sæti væri ég aldrei að breyta hvernig ég ætla að gera mitt. Þannig að ég veit ekkert hvernig ég stend í veðbönkum og ég er bara að segja hundrað prósent sannleikann.“ Þá þakkar hún Íslendingum kærlega fyrir stuðninginn, sem hún hélt ekki endilega að væri sjálfgefinn. „Ég er bara búin að upplifa stuðning frá Íslandi. Sem er geggjað. Það var alveg búið að vara mig við Íslendingum, ég fékk viðvaranir. En það er bara hrein ást. Ég kann mjög mikið að meta það.“ Eurovísir er þáttur um Eurovision - á Vísi! Við kryfjum keppnina, komandi og liðnar, og eltum okkar fólk út til Liverpool. Fyrri þætti má nálgast hér.
Eurovision Eurovísir Tengdar fréttir Varð að breyta förðuninni þegar hún sá nýja búninginn „Þegar ég sá búninginn þá hugsaði ég að við þyrftum að gera eitthvað aðeins meira kúl,“ segir Lilja Dís Smáradóttir, sem sér um förðun og hár fyrir íslenska Eurovision-atriðið. Eins og sjá má af myndum frá æfingum Diljár hefur búningur hennar tekið talsverðum breytingum frá því sem var í Söngvakeppninni heima. 10. maí 2023 20:12 Snúningspallurinn klikkaði á ögurstundu í kvöld Tæknilegir örðugleikar gerðu vart við sig í framlagi Íslands á dómararennsli í Eurovision-höllinni í Liverpool í kvöld. Snúningspallur sem Diljá notar á sviðinu hætti að virka en verður kominn í lag fyrir stóru stundina annað kvöld, að sögn Diljár sjálfrar. 10. maí 2023 22:04 Bretar sannfærðir um að Diljá fljúgi áfram Bretar sem Eurovísir hitti á förnum vegi í Liverpool, þar sem Eurovision fer nú fram, eru flestir á því að Diljá, fulltrúi okkar Íslendinga í keppninni, komist áfram í úrslit keppninnar. 9. maí 2023 19:09 Ekki endilega viss um að símakosningin fari vel með Loreen Eurovision-sérfræðingur segir sænskan sigur í Eurovision í ár alls ekki meitlaðan í stein; Finnar gætu vel hreppt hnossið ef dómnefndir verða þeim hliðhollar. Nú þegar stóra stundin nálgast óðfluga gæti hagur Íslands jafnframt vænkast í veðbönkum en hann hefur þó ekki trú á að framlagið hafni ofar en í 15. sæti. 6. maí 2023 10:01 Ekki talið öruggt fyrir hana að vera á almannafæri Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona, sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í gervi Silvíu Nætur árið 2006, lýsir algjöru fjölmiðlafári kringum atriðið á sínum tíma. Skapofsi Silvíu Nætur kom henni ítrekað í klandur, bæði gagnvart skipuleggjendum Eurovision og grísku þjóðinni. Skömmu eftir keppnina var henni beinlínis ráðið frá því að vera á almannafæri, slík var heiftin úti í Grikklandi. 5. maí 2023 09:01 Mest lesið Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Lífið Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Lífið Alexandra greifynja breytir nafninu Lífið Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Lífið Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Lífið Svaraði engu um Affleck Lífið Birnir og Bríet gefa saman út plötu Lífið Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Lífið Rakel María fann draumaprinsinn Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eins árs leikhússkóli fyrir ungt fólk stofnaður í Þjóðleikhúsinu Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Svaraði engu um Affleck Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Alexandra greifynja breytir nafninu Birnir og Bríet gefa saman út plötu Einn stofnenda Train er látinn Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Rakel María fann draumaprinsinn Tvöföld vandræði fyrir Doctor Victor Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Ísdrottningin einhleyp Sást með hringinn en eiginkonan enn víðsfjarri Ásdís Rán og frítt húðflúr hjá Prettyboitjokkó Litfögur listamannaíbúð við Melhaga Af vængjum fram: Ýmist skömmuð fyrir geiflurnar eða fyrir að vera fýluleg „Ísbirnirnir voru rétt hjá okkur“ Mætti í sjónvarpið eftir nokkurra ára hlé og segist hafa lært sína lexíu Er hægt að „lækna“ lélegt kynlíf? Forsetaáskorunin: Hljóp í skarðið á Stuðmannaballi en í basli með textann Prinsinn hélt blautt garðpartý Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Clooney mælti með handtöku Netanyahu Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Sungið og sungið á Sauðárkróki Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Sjá meira
Varð að breyta förðuninni þegar hún sá nýja búninginn „Þegar ég sá búninginn þá hugsaði ég að við þyrftum að gera eitthvað aðeins meira kúl,“ segir Lilja Dís Smáradóttir, sem sér um förðun og hár fyrir íslenska Eurovision-atriðið. Eins og sjá má af myndum frá æfingum Diljár hefur búningur hennar tekið talsverðum breytingum frá því sem var í Söngvakeppninni heima. 10. maí 2023 20:12
Snúningspallurinn klikkaði á ögurstundu í kvöld Tæknilegir örðugleikar gerðu vart við sig í framlagi Íslands á dómararennsli í Eurovision-höllinni í Liverpool í kvöld. Snúningspallur sem Diljá notar á sviðinu hætti að virka en verður kominn í lag fyrir stóru stundina annað kvöld, að sögn Diljár sjálfrar. 10. maí 2023 22:04
Bretar sannfærðir um að Diljá fljúgi áfram Bretar sem Eurovísir hitti á förnum vegi í Liverpool, þar sem Eurovision fer nú fram, eru flestir á því að Diljá, fulltrúi okkar Íslendinga í keppninni, komist áfram í úrslit keppninnar. 9. maí 2023 19:09
Ekki endilega viss um að símakosningin fari vel með Loreen Eurovision-sérfræðingur segir sænskan sigur í Eurovision í ár alls ekki meitlaðan í stein; Finnar gætu vel hreppt hnossið ef dómnefndir verða þeim hliðhollar. Nú þegar stóra stundin nálgast óðfluga gæti hagur Íslands jafnframt vænkast í veðbönkum en hann hefur þó ekki trú á að framlagið hafni ofar en í 15. sæti. 6. maí 2023 10:01
Ekki talið öruggt fyrir hana að vera á almannafæri Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona, sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í gervi Silvíu Nætur árið 2006, lýsir algjöru fjölmiðlafári kringum atriðið á sínum tíma. Skapofsi Silvíu Nætur kom henni ítrekað í klandur, bæði gagnvart skipuleggjendum Eurovision og grísku þjóðinni. Skömmu eftir keppnina var henni beinlínis ráðið frá því að vera á almannafæri, slík var heiftin úti í Grikklandi. 5. maí 2023 09:01