Innlent

Úrslit um úrsögn Eflingar úr SGS liggja fyrir síðdegis

Heimir Már Pétursson skrifar
Leiðir Eflingar og Starfsgreinasambandsins skildu við gerð síðustu kjarasamninga. Átján aðildarfélög SGS gengu frá skammtíma kjarasamningi án aðgerða en Efling fór í harðar aðgerðir.
Leiðir Eflingar og Starfsgreinasambandsins skildu við gerð síðustu kjarasamninga. Átján aðildarfélög SGS gengu frá skammtíma kjarasamningi án aðgerða en Efling fór í harðar aðgerðir. Vísir/Vilhelm

Atkvæðagreiðslu félagsmanna Eflingar um úrsögn Félagsins úr Starfsgreinasambandinu lýkur klukkan þrjú í dag. Verði úrsögnin samþykkt hverfur fjölmennasta aðildarfélag SGS úr sambandinu.

Engin skilyrði eru um hlutfallslega þátttöku í atkvæðagreiðslunni upp á gildi hennar en 66 prósent þeirra sem greiða atkvæði þurfa að samþykkja úrsögninga til þess að hún taki gildi. Atkvæðagreiðslan hefur staðið yfir í viku og fer fram rafrænt en félagsmönnum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði á pappír.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sagt að tillaga um úrsögn félagsins úr SGS tengist ekki því að félagið fylgdi sambandinu ekki að málum við gerð síðustu kjarasamninga. Stöð 2/Ívar Fannar

Reiknað er með að úrslit atkvæðagreiðslunnar liggi fyrir á milli klukkan hálf fjögur og fjögur í dag. Nítján stéttarfélög eru aðilar að Starfsgreinasambandinu og er Efling fjölmennasta félagið, með 28 þúsund félagsmenn af 72.000 félagsmönnum sambandsins.

Á árum áður lá aðild einstakra stéttarfélaga að Alþýðusambandinu í gegnum landssambönd stéttarfélaga. Lögum ASÍ var hins vegar breytt árið 2011 þannig að stéttarfélög geta átt beina aðild að ASÍ. Samþykki félagsmenn Eflingar að yfirgefa Starfsmannasambandið hefur það því ekki áhrif á aðild Eflingar að ASÍ.

Ekki er búist við mikilli þátttöku í atkvæðagreiðslunni sem hófst á fimmtudag fyrir viku hinn 4. maí. Atkvæðagreiðslan var boðuð með samþykki stjórnar, trúnaðarráðs og félagsfundar sem haldinn var hinn 24. apríl síðast liðinn.


Tengdar fréttir

Munu boða til at­kvæða­greiðslu um úr­sögn úr SGS

Það var einróma niðurstaða á félagsfundi Eflingar að boða til allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks um úrsögn Eflingar úr Starfsgreinasambandinu (SGS). Formaður Eflingar segir fjármunum félagsins betur varið en í greiðslur til SGS.

Greiddu 53 milljónir til SGS í fyrra en sæki enga þjónustu þangað

Formaður Eflingar segir mögulega úrsögn félagsins úr Starfsgreinasambandinu (SGS) ekki tengjast óeiningu í kjarasamningsviðræðum í vetur. Hún segir að boðað verði til félagsfundar á næstu dögum þar sem ákveðið verður hvort úrsögnin fari í allsherjaratkvæðagreiðslu eða ekki. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×