Fótbolti

Ingi­björg og Selma Sól skildu jafnar í toppslag dagsins

Aron Guðmundsson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Valerenga 
Ingibjörg Sigurðardóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Valerenga  Vålerenga

Íslendingaslag dagsins milli Rosenborg og Valerenga, sem jafnframt var toppslagur dagsins í úrvalsdeild kvenna í Noregi, lauk með markalausu jafntefli.

Íslensku landsliðskonurnar Ingibjörg Sigurðardóttir, leikmaður Valerenga og Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg, voru báðar í byrjunarliðum sinna liða í leik dagsins þar sem hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið.

Leikið var á heimavelli Rosenborg og ljóst að leikmenn Valerenga geta verið ívið sáttari með úrslit dagsins þar sem þær halda sínu þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Rosenborg er sem stendurí 2.sæti deildarinnar en leiknar hafa verið átta umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×