Lífið

Löng röð á lager­sölu á Laugar­dalsvelli

Íris Hauksdóttir skrifar
Sólrún Diego markaðsstjóri barnafataverslunarinnar Bíum Bíum er orðlaus yfir viðbrögðum fólks við lagersölunni í morgun.
Sólrún Diego markaðsstjóri barnafataverslunarinnar Bíum Bíum er orðlaus yfir viðbrögðum fólks við lagersölunni í morgun. Aðsend

Gríðarleg röð myndaðist nú í morgun fyrir framan Laugardalsvöll en þar er verslunin Bíum Bíum að hefja lagersölu á barnafötum. 

Ljóst er að áhugi er mikill fyrir fallegum barnafötum á betra verði en verslunin hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. „Við áttum alls ekki von á að toppa síðustu lagersölu," segir Sólrún Diego, markaðsstjóri fyrirtæksins. Sjálf er hún menntuð viðskiptafræðingur með áherslu á samfélagsmiðla og tók við markaðsstjórn fyrirtækisins á síðasta ári. 

Hér fyrir neðan má sjá fólksfjöldan sem safnaðist saman rúmum hálftíma fyrir opnun en röðin gæti auðveldlega toppað röð á stórtónleika á góðviðrisdegi. 

Klippa: Löng röð vegna lagersölu á Laugardalsvelli

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×