Lífið samstarf

Vel­komin í ævin­týra­ferð hjá Sjávar­grillinu

Sjávargrillið
Samsettir matseðlar eru mjög vinsælir meðal gesta Sjávargrillsins. Sá vinsælasti heitir Grillpartý og inniheldur sex rétta ævintýraferð.
Samsettir matseðlar eru mjög vinsælir meðal gesta Sjávargrillsins. Sá vinsælasti heitir Grillpartý og inniheldur sex rétta ævintýraferð.

Einn af lífseigari og vinsælli veitingastöðum borgarinnar er Sjávargrillið við Skólavörðustíg en staðurinn fagnaði nýlega tólf ára afmæli.

Eins og nafnið gefur til kynna er lögð áhersla á ýmis konar fiskmeti en einnig er boðið upp á ljúffenga kjöt- og grænmetisrétti. Sjávargrillið er veitingastaður vikunnar á Vísi.

Samsettir matseðlar hafa frá upphafi verið mjög vinsælir meðal gesta Sjávargrillsins en þar leika kokkarnir sér með ferskasta og besta hráefnið hverju sinni og töfra fram sannkallaða veislu fyrir matargesti. „Vinsælasti samsetti matseðillinn okkar ber nafnið Grillpartý,“ Gústav Axel Gunnlaugsson matreiðslumeistari og eigandi Sjávargrillsins. „Um er að ræða sex rétta ævintýraferð sem er einungis í boði fyrir allt borðið. Þar blöndum við saman fisk- og kjötréttum auk þess sem við útbúum líka sambærilegan seðil fyrir grænmetisætur.“

Kokkarnir fá að leika sér

Við gerð matseðilsins gilda í sjálfu sér engar sérstakar reglur aðrar en þær að fjölbreytni þarf að vera til staðar. „Við leyfum kokkunum að leika sér enda þurfa þeir stundum að leika lausum hala. Sem dæmi þá fáum við ferskan fisk daglega en við ekki alltaf hvað við fáum. Það gæti verið steinbítur, langa, þorskur eða eitthvað annað. Við höfum boðið upp á Grillpartý frá upphafi og þau hafa alltaf notið vinsælda hjá okkur.“

Aðrir samsettir matseðlar sem njóta vinsælda hjá Sjávargrillinu eru Sælkeraveisla og Fiskiveisla. „Sælkeraveislan inniheldur fjóra fjölbreytta rétti sem innihalda bæði kjöt og fisk meðan Fiskiveislan býður upp á vinsælu skelfiskssúpuna okkar, grillaða fiski tvennu og gómsætan eftirrétt.“

Utan samsettra matseðla býður Sjávargrillið upp á hefðbundinn matseðil sem inniheldur gott úrval fiskrétta og kjöt- og grænmetisrétti. „Svo er iðulega þétt setið hér í hádeginu en þá er fiskur dagsins og sushi vinsælustu réttirnir.“

Stöðugleiki og gott starfsfólk er lykillinn

Það er ekki sjálfgefið að fagna tólf ára afmæli í veitingabransanum. „Ég held að lykillinn sé einfaldlega að halda góðum stöðugleika og góðu starfsfólki. Við höfum alla tíð lagt mikla áherslu á úrvals hráefni og flest starfsfólk okkar hefur verið hjá okkur lengi. Sem dæmi höfum við haft sama yfirkokk frá upphafi, hann Pétur Alexson. Þessi blanda er því góður grunnur til að byggja á.“

Nánari upplýsingar á sjavargrillid.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×