Lífið

Markús mætti á dráttarvél tvíbura síns í jarðarförina hans

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Myndin af Markúsi á dráttarvélinni á Reykjanesbrautinni vakti mikla athygli og það áður en dóttir hans hafði deilt hjartnæmri sögu föður síns og tvíburabróður hans.
Myndin af Markúsi á dráttarvélinni á Reykjanesbrautinni vakti mikla athygli og það áður en dóttir hans hafði deilt hjartnæmri sögu föður síns og tvíburabróður hans. Mynd/Kjartan Sverrisson

Markús Sigurðsson segir ekki hafa komið til greina annað en að koma akandi á dráttarvél Jóns Friðriks Sigurðssonar tvíburabróður síns þegar sá síðarnefndi var borinn til grafar á dögunum. Mynd af Markúsi á dráttarvélinni vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og ekki síst þegar Linda dóttir Markúsar upplýsti netverja um sögu bræðranna. 

Myndin af Markúsi á dráttarvélinni á Reykjanesbrautinni birtist á samfélagsmiðlinum Twitter í vikunni. Fyrst um sinn þótti fólkiskondið að sjá mann á dráttarvél akandi á Reykjanesbrautinni þar sem sást í merki kynlífshjálparverslunar í baksýn. Þar mættust gamli tíminn og sá nýi.

Mögulegur hlátur varð fljótt að fallegum tárum þegar dóttir Markúsar greindi frá því að þarna væri pabbi hennar á ferðinni og tilefnið sorglegt.

Markús og Jón Friðrik, sem alltaf var kallaður Nonni.

„Þetta er pabbi minn. Hann missti tvíburabróður sinn skyndilega en þeir gerðu upp traktora saman. Hinsta kveðja pabba var því (eðlilega) að hafa uppgerða Deutz dráttarvél fyrir utan kirkjuna þegar bróðir hans var jarðsettur,“ segir Linda. Jón Friðrik var 76 ára þegar hann lést á síðasta degi febrúar.

„Við vorum alltaf að gera við þessar vélar saman,“ segir Markús í samtali við Vísi. 

„Við vorum tvíburar þar að auki og búnir að vera saman síðan í móðurkviði. Þannig að það kom ekki annað til greina en að keyra á traktornum hérna úr Hafnarfirðinum og í Bústaðarkirkju.“

Um var að ræða traktor sem hafði verið í fóstri hjá Jóni í tólf ár eða síðan 2011.

 „Ég sótti hann norður í Mývatnssveit og keyrði hann suður. Hann gekk alveg en það þurfti að gera gríðarlega mikið við hann,“ útskýrir Markús.

Útförin fór fram þann 14. mars síðastliðinn. 

„Það var átta stiga frost, helvítis gaddur og kalt á móti. Þetta minnti mann á gömlu góðu dagana,“ segir Markús sem keyrði á 22 kílómetra hraða í kirkjuna.

Markús á dráttarvél tvíburabróður síns fyrir utan Bústaðakirkju daginn sem útför hans fór fram í kirkjunni.

Manndómsvígsla að keyra dráttarvélina heim níu ára gamlir

„Við erum aldnir upp í Þingvallasveit og þegar við vorum níu ára gamlir þá fórum við með afa að sækja traktor. Afi fór í rútu til baka en við fengum tveir að keyra átta kílómetra leið heim í Svartagil,“ segir Markús hlæjandi.

„Níu ára gamlir! Það mætti sennilega ekki í dag. Ætli afi yrði ekki hengdur ef hann myndi gera þetta í dag, að láta níu ára börn gera þetta. Svona hefur þetta breyst,” segir Markús.

Tvíburabræðurnir unnu saman að fjölmörgum dráttarvélum í gegnum árin enda fóru þeir einir sína fyrstu ferð á slíku tæki einungis níu ára gamlir.

Linda segir í samtali við Vísi að upp frá þessari manndómsvígslu hafi bræðurnir elskað dráttarvélar. 

„Þetta var eitthvað sem batt þá saman og þeir litu á sem manndómsvígslu alla tíð.“ 

Linda segist hafa talið sér ljúft og skylt að segja frá sögu föður síns á samfélagsmiðlum.

„Þetta snerti gríðarlega marga. Þarna eru menn sem eru fæddir 1947 og ekki mikið að flíka tilfinningum sínum, svo mér fannst um að gera að deila því með fólki hver tilgangur ferðarinnar var hjá pabba,“ segir Linda.

„Þeir voru endalaust að vinna í þessu saman. Alltaf þegar það sést traktor í umferðinni þá fæ ég senda spurningu: „Er þetta ekki pabbi þinn?“,“ segir Linda hlæjandi og bætir við: 

„Og í svona 95 prósenta tilvika þá er þetta akkúrat pabbi minn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×