Sjóðheitur Orri áfram á markaskónum Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2023 17:15 Orri Steinn fagnar. Twitter@SEfodbold Orri Steinn Óskarsson skoraði annað marka Sönderjyske þegar liðið féll úr leik í danska bikarnum í knattspyrnu í dag. Sönderjyske tapaði 3-2 gegn Silkeborg og samtals 5-2.
Liðin mættust í síðari leik 8-liða úrslita danska bikarsins í dag en Silkeborg var í góðri stöðu fyrir leikinn eftir 2-0 sigur á útivelli í fyrri leiknum. Sönderjyske leikur í næst efstu deild en Silkeborg siglir nokkuð lygnan sjó í efstu deild. Það voru gestirnir frá Sönderjyske sem hófu leikinn í dag af krafti. Orri Steinn kom liðinu í 1-0 á 30. mínútu og Sönderjyske komst í 2-0 skömmu síðar þegar Oliver Sonne skoraði sjálfsmark. Staðan í hálfleik 2-0 en einvígið hnífjafnt. Heimamenn í Silkeborg stigu hins vegar upp eftir hlé. Þeir minnkuðu muninn á 52. mínútu eftir sjálfsmark Marc Dal Hende og á 66. mínútu jafnaði Sören Tengstedt metin. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði svo Alexander Busch sigurmark Silkeborg sem vann að lokum 3-2 sigur. Orri Steinn Óskarsson hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu. Hann skoraði í öllum leikjum U-19 ára landsliðs Íslands þegar liðið tryggði sér sæti úr milliriðli og á lokamót Evrópukeppninnar og varð þar að auki markahæsti leikmaður undankeppninnar. Orri Steinn er á láni hjá Sönderjyske frá FC Kaupmannahöfn en markið í dag var hans þriðja í öllum keppnum síðan hann gekk til liðs við Sönderjyske í lok janúar. Stefán Teitur Þórðarson var ekki í leikmannahópi Silkeborg í dag.
Danski boltinn Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Sjáðu Stjörnuna klára Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira