Kanna sakhæfi Íslendings í hrottalegu morðmáli Ólafur Björn Sverrisson skrifar 5. apríl 2023 17:51 Daníel var handtekinn af lögreglunni í Kaliforníu í maí 2021. Myndin tengist fréttinni ekki neitt. SARAH REINGEWIRTZ/GETTY Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur sem grunaður er um að hafa myrt bekkjarsystur sína í Kaliforníu, verður leiddur fyrir dómara í þessum mánuði þar sem sakhæfi hans verður metið á ný. Hann hafði áður verið metinn ósakhæfur.
Frá þessu er greint á fréttamiðlinum KGET í Kaliforníu. Þar kemur fram að Daníel verði leiddur fyrir dóm þann 25. apríl næstkomandi þar sem ný gögn frá sálfræðingi verða metin. Hann hafði árið 2021 verið metinn ósakhæfur. Í framhaldinu gekkst Daníel undir sálfræðimeðferð og var þar metinn sakhæfur í mars á síðasta ári. Daníel er grunaður um að hafa myrt og limlest unga konu í bænum Ridgecrest í Kaliforníu í maímánuði 2021. Hann hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu en neitar sök. Að morgni dags 18. maí fannst Daníel Gunnarsson í bílskúr á heimili stjúpföður síns í Ridgecrest með lík Katie Pham, 21 árs stúlku, við hlið sér. Samkvæmt dómsgögnum sem fréttastofa 17 News hefur undir höndum voru buxur, hendur og háls Daníels útataðar í blóði. Að mati réttarmeinafræðings var Pham stungin til bana en hún var með fjölda stunguáverka á líkama og höfði. Talið er að Daníel hafi notað ísnál við verknaðinn. Daníel neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær.
Íslendingar erlendis Bandaríkin Mál Daníels Gunnarssonar Tengdar fréttir Daníel neitar að hafa myrt bekkjarsystur sína Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt fyrrverandi bekkjarsystur sína og limlest lík hennar. 19. júlí 2022 12:12 Mest lesið Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Sjá meira
Daníel neitar að hafa myrt bekkjarsystur sína Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt fyrrverandi bekkjarsystur sína og limlest lík hennar. 19. júlí 2022 12:12