Sanna hættir sem formaður Bjarki Sigurðsson skrifar 5. apríl 2023 08:18 Sanna Marin hefur setið á finnska þinginu síðan árið 2015 og gegnt stöðu formanns Jafnaðarmannaflokksins síðan árið 2020. Getty/Nicolas Economou Sanna Marin, fráfarandi forsætisráðherra Finnlands, hefur sagt af sér sem formaður Jafnaðarmannaflokksins í landinu. Að öllum líkindum mun Petteri Orpo taka við sem forsætisráðherra landsins á næstu dögum.
Í finnsku þingkosningunum sem fram fóru um helgina fékk flokkur Sönnu 43 þingmenn en Sambandsflokkurinn fékk 48 þingmenn af tvö hundruð. Þjóðernisflokkurinn Finnaflokkurinn fékk 46 þingmenn. Játaði Sanna Marin ósigur og óskaði Petteri Orpo, formanni Sambandsflokksins, til hamingju með sigurinn. Mun hann leiða stjórnarmyndunarviðræður og er hefðin sú að formaður vinsælasta flokksins verði forsætisráðherra. Yle greinir frá því að Sanna Marín hafi tilkynnt að hún muni segja af sér sem formaður Jafnaðarmannaflokksins á morgun. Hún hafði ekkert tjáð sig um stöðu sína eftir kosningarnar fyrr en nú. Hún segir ákvörðun sína ekki eingöngu koma til vegna sigurs Orpo en hún mun halda áfram að vera óbreyttur þingmaður á finnska þinginu. Hún segir síðastliðið ár hafa reynst sér mjög erfitt og vildi hún nýta tækifærið til að stíga til hliðar. Flokkurinn er í viðræðum við Sambandsflokkinn um sæti í ríkisstjórninni en Sanna mun halda áfram að leiða flokkinn í þeim viðræðum að eigin sögn. Formlegar viðræður geta þó ekki hafist fyrr en föstudaginn eftir páska.
Finnland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira