Lífið

Stjörnu­lífið: Verð­laun, skíði og lúxus

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett

Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Í síðustu viku nýttu því margir tækifærið og skelltu sér á skíði áður en snjórinn kveður endanlega. Þá er verðlaunavertíðin ennþá í fullum gangi og voru Íslensku tónlistarverðlaunin veitt nú í vikunni. 

Fjölmargir lögðu leið sína á afmælissýningu á Kjarvalsstöðum um helgina og virtu fyrir sér hin ýmsu listaverk í sögu safnsins. Þar mátti meðal annars sjá leikkonuna Nínu Dögg Filippusdóttur, Má Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóra og Selmu Björnsdóttur söng- og leikkonu.

Vísir fjallaði um sýninguna í síðustu viku en þá umfjöllun má lesa hér.


Tónlistarkonan GDRN fagnaði sinni fyrstu gullplötu.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir lætur frostið ekki á sig fá.

Athafnakonan Brynja Dan skellti sér á skíði.

Leikarinn og leikstjórinn Gísli Örn svífur enn á bleiku skýi eftir Edduna þar sem Verbúðin sópaði að sér verðlaunum.

Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir sló í gegn á Eurovision-viðburði í Barcelona.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór hefur sópað inn verðlaunum síðustu daga.

Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Birgitta Líf skellti sér í þyrluflug.

Gleðigjafarnir Selma Björnsdóttir og Króli sáu um að halda uppi stuðinu á Íslensku tónlistarverðlaununum.

„Eina kvöldið á árinu sem við erum yngstir í salnum,“ skrifar Auðunn Blöndal undir mynd af FM95Blö félögunum sem skelltu sér á Herrakvöld Njarðar.

Tónlistarkonan Gugusar var valin flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

„Tveir blek bræður í tónlist,“ skrifar Bubbi Morthens undir mynd af sér og tónlistarmanninum Aroni Can.

Tónlistarkonan Bríet brosti breitt á 24 ára afmælisdegi sínum.

Athafnakonan Tanja Ýr er full af innblæstri.

Reykjavíkurdóttirin Þura Stína birti skemmtilegar myndir frá fimm daga Íslandsheimsókn en hún er búsett í Milanó.

„Barnastjörnurnar,“ skrifar söngkonan Jóhanna Guðrún undir mynd af sér og Chicago-mótleikara sínum Björgvin Franz.

Ljósmyndarinn Helgi Ómars fór í rómantíska ferð til Parísar með sínum heittelskaða Pétri Sveinssyni. Sú ferð endaði svo í skíðabrekkum Val-d'Isère í Frakklandi.

Crossfit-stjarnan Annie Mist er líklega ein af fáum sem nýtur sín vel í kalda loftinu.

Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör naut sín í London.

Eddu-lúkk raunveruleikastjörnunnar Patreks Jamie þarf að fá sitt augnablik. Þeir Æði-félagar voru tilnefndir fyrir mannlífsefni ársins.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar naut lífsins á Costa Rica ásamt söngkonunni Maríu Björk.

Athafnakonan Camilla Rut lætur sig dreyma um næsta ferðalag.

„Denim on denim“ er eitt það heitasta um þessar mundir og dansarinn Ástrós Trausta er með það alveg á hreinu.

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir birti hjónamynd frá Eddunni.

Vala Kristín, Júlíana Sara, Karen Björg og Fannar Sveins, sem standa að baki vinsælu þáttunum Venjulegt fólk, skelltu sér í höfunda- og hópeflisferð til Grenivíkur.

Tískudrottningin Sigríður Margrét fagnaði nýrri samstarfslínu 66°Norður og Ganni.

Ljósmyndarinn og listakonan Saga Sig birti þessar fallegu myndir sem teknar voru nokkrum klukkutímum áður en hún fór af stað í fæðingu.

Áslaug Arna fékk góða heimsókn í ráðuneytið.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir var kát á Króknum.

Tónlistarkonan Svala Björgvins óskaði landsmönnum kynþokkafullrar helgar.

Leikkonan Íris Tanja sinnti fyrirsætustörfum fyrir frænku sína.

Bleikt og rautt er „rúllandi fínt saman“ að mati samfélagsmiðlastjörnunnar Guðrúnar Veigu.

Rapparinn Daniil sem kosinn var nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum þakkar fyrir góðar móttökur á laginu 600. Hann birtir hér mynd sem tekin var á setti Vikunnar með Gísla Marteini, þar sem Daniil steig á stokk.

Tískumógúllinn Gummi Kíró er með góð skilaboð inn í vikuna: „Vertu þú sjálfur. Það er enginn betri“.

„Áfram konur í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðinum,“ skrifar leikkonan Hera Hilmarsdóttir.

Söngdívurnar Jóhanna Vigdís, Selma Björns og Stefanía Svavars sungu á ABBA heiðurstónleikum í Hofi.

María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttaþulur, og Tómas Sigurðsson, forstjóri, skelltu sér í skíðaferð alla leið til Niseko í Japan.

Skjáskot
Skjáskot

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×