Lífið

Stjörnu­lífið: Dívu­stælar, hvers­dags­leiki og nístandi kuldi

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi. Samsett

Hversdagsleiki og nístandi kuldi einkenndu liðna viku. Þjóðþekktir einstaklingar gerðu sér dagamun meðal annars með árshátíðum, förðunarnámskeiði og líkamsræktaræfingum, á meðan aðrir flúðu kuldann út fyrir landsteinana.

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einars yljaði sér við myndir frá ferð LXS-hópsins til Kanaríeyja.

Það sama gerðu LXS-skvísurnar Ína María, Magnea Björg og Hildur Sif.

Eurovision-stjarnan Diljá lenti í vandræðum með Instagram aðgang sinn en er nú snúin aftur.

Rakel María, förðunarfræðingur stjarnanna, hélt masterclass í samstarfi við Reykjavík Makeup School. Þar kenndi Rakel svokallaða dívuförðun og er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til á þessum glæsilega viðburði.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson birti stórskemmtilegt og ofurkrúttlegt æfingarmyndband.

Ofurparið Lína Birgitta og Gummi Kíró eru nýkomin heim á klakann eftir að hafa notið sín á tískuvikunni í París en af myndum að dæma er töluvert kaldara hér heima en í borg ástarinnar.

„Lífið er víst ekki bara svart og hvítt, þá hittumst við bara í miðjunni í gráu,“ skrifar athafnakonan Brynja Dan undir fallega mynd af sér.

Söngkonan Birgitta Haukdal skellti sér á skíði og af myndum að dæma skemmti hún sér konunglega.

Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Edda skírði dóttur sína. Stúlkan heitir Elísa Eyþóra en seinna nafnið er í höfuðið á bróður Katrínar sem lést fyrir skömmu.

Tónlistarkonan Elín Ey birti fallegar myndir af sér og kærustu sinni Írisi Tönju.

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens tók speglamynd í tilefni 166. sýningar Níu lífa. Sýningin fagnaði einmitt þriggja ára afmæli nú um helgina.

Ljósmyndarinn Helgi Ómars er eitursvalur í kuldanum.

„Fokkuppessuþorpi,“ skrifar tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör sem spilaði á Akureyri um helgina.

Áslaug Arna skellti sér í helgarferð með vinkonum sem hún kynntist í lögfræðinámi. Hún þakkar Lögbergi fyrir það að hafa leitt þær saman.

Söngkonan Svala Björgvins birti paramynd af sér og Lexa, kærasta sínum, frá Söngvakeppninni síðustu helgi.

Tónlistarkonan Laufey hafði það notalegt á heimili sínu í Los Angeles.

Förðunarfræðingurinn Erna Hrund er dugleg að gefa fylgjendum sínum hugmyndir þegar kemur að klæðaburði, hári og förðun. Um helgina sýndi hún hvernig galdra mætti fram þessa fallegu en einföldu hárgreiðslu.

Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars skellti sér til Madrídar með kærasta sínum Sigmari Inga.

Samfélagsmiðlastjarnan Guðrún Veiga aðhyllist ekki þá stefnu að spara fötin sín fyrir ákveðin tilefni.

Íþróttakonan Katrín Tanja minnti fylgjendur sína á mikilvægi þess að sýna seiglu í erfiðum aðstæðum.

Athafnakonan Camilla Rut segir það hafa verið einstaklega góða ákvörðun að fá sér gleraugu og sjá loksins aðeins betur.

Það styttist óðum í að tónlistarmaðurinn Aron Can verði pabbi. Hann og Erna María, kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni.

Förðunarfræðingurinn Thelma Guðmunds klæðir sig vel í kuldanum.

Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga var stórglæsileg á árshátíð SHA.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir veit hvað hún syngur er viðkemur tísku og má því ætla að grænn sé heitur um þessar mundir.

Dansarinn Ástrós Traustadóttir naut sín í helgarfríinu.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna er með skemmtilegan og töffaralegan stíl.

Söngkonan Jóhanna Guðrún er á fullu fyrir norðan þessa dagana þar sem hún fer með aðalhlutverk í sýningunni Chicago í uppsetningu Leikfélags Akureyrar.

Athafnakonan Tanja Ýr birti skemmtilegt myndband þar sem hún leyfði fylgjendum sínum að kynnast sér örlítið betur.

Ljósmyndarinn Saga Sig birti fallegar myndir á lokametrum meðgöngunnar.

Skemmtikrafturinn Eva Ruza glæddi sig upp fyrir gigg með vetrarþema.

Tónlistarkonan Gugusar lætur ekki góða birtu fara til spillis.

Athafnakonan Elísabet Metta naut sín á Akureyri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×