Lífið

Stjörnu­lífið: Söngva­keppnin, bón­orð og tvö­föld gleði­tíðindi

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi. Samsett

Um helgina völdu Íslendingar fulltrúa sinn í Eurovision. Söngvakeppnin setti því mikinn svip á síðustu viku og hefur keppnin líklega aldrei verið glæsilegri en í ár.

Diljá Pétursdóttir kom sá og sigraði Söngvakeppnina á laugardagskvöldið og verður því fulltrúi Íslands í Eurovision í maí. Þessi kraftmikla kona er lifandi sönnun þess að draumar geta ræst en hún hafði látið sig dreyma um að keppa í Eurovision frá því að hún var lítil stelpa.

Þakklæti er efst í huga söngkonunnar Siggu Ózkar sem keppti í úrslitum Söngvakeppninnar. „Ísland, við erum rétt svo bara að byrja að mála bæinn rauðan,“ skrifar hún.

Söngvarinn Úlfar Viktor var einn af þeim sem tóku lagið í FÁSES eftirpartýi Söngvakeppninnar.

Hljómsveitin Systur komu að sjálfsögðu fram á úrslitakvöldinu og afhentu Diljá Söngvakeppnisbikarinn. Systirin Beta fer yfir viðburðaríkt síðasta ár hjá hljómsveitinni.

Leikkonan Íris Tanja er yfir sig stolt af kærustu sinni Elínu Ey og hinum systrunum.

Gleðigjafinn Helgi Ómarsson trúlofaðist ástinni sinni, Pétri Björgvin Sveinssyni.

LXS áhrifavaldahópurinn skellti sér í sannkallaða lúxusferð til Kanaríeyja. Vinkonurnar virðast hafa skemmt sér konunglega en þær fóru meðal annars á snekkju og heimsóttu vínekru. Tökur standa nú yfir á annarri þáttaröð af LXS-raunveruleikaþáttunum og voru myndavélarnar að sjálfsögðu með í för.

LXS-skvísan Ástrós Traustadóttir var þó fjarri góðu gamni í þetta skiptið enda tók hún við nýju hlutverki nú á dögunum þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn. Dóttir hennar er nú mánaðar gömul og Ástrós birti fallegar myndir úr fæðingarorlofinu.

Hamingjan skein af andliti Camillu Rutar þar sem hún var stödd í skíðaferð með kærasta sínum Valla. „Shoutout á góðan mann sem vill ekkert meira en að ég fái að upplifa allt sem er gott og gaman í þessu lífi,“ segir hún.

Söngkonan Birgitta Haukdal birti mynd af sér í þessari stórglæsilegu múnderingu.

Tískumógúllinn Andrea Röfn gaf út sína áttundu línu í samstarfi við skóframleiðandann Jodis. Hún skellti sér því í stutta vinnuferð til Íslands og tók bæði börnin sín með.

Bubbi Morthens skellti sér á boxæfingu.

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja frumsýndi nýjan hárlit.

Hlaðvarpsstjórnandinn Birta Líf hélt upp á afmælið sitt. Þema veislunnar var afar skemmtilegt en það var einfaldlega Birta sjálf. Vinkonur Birtu mættu því sem hinar ýmsu útfærslur af Birtu og var útkoman afar skemmtileg.

Jóhanna Guðrún er engin venjuleg mamma heldur er hún eitursvöl mamma.

Leikkonan Aldís Amah fagnaði tveimur stórum áföngum í vikunni. Hún fékk tilnefningu til Edduverðlauna og fékk nýjar tennur. Framtennur hennar brotnuðu þegar hún var yngri og hefur hún verið með gervitennur síðan. Aldís segir tannleysið hafa tekið á bæði andlega og líkamlega. Stundum greip hún þó í húmorinn eins og þegar hún reif úr sér gervitennurnar fyrir framan alþjóð í Vikunni með Gísla Marteini. Nú vonar hún þó að tannlausir tímar séu á enda.

Tískuparið Lína Birgitta og Gummi Kíró skelltu sér á tískuvikuna í París.

Tanja Ýr birti skemmtilegar myndir frá afmælishelginni sinni.

Förðunardrottningin Ingunn Sig birti myndir frá síðustu dögum. Hún er ófrísk af sínu fyrsta barni og geislar á meðgöngunni.

Rúrik Gísla fór í myndatöku hjá Kára Sverris.

Elín Metta, fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, birti mynd af sér sem kærasti hennar tók af henni.

Tiktok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir stillti sér upp á Miami.

Gleðigjafinn Eva Ruza var hoppandi kát í Hollywood.

Unnur Eggerts fagnaði afmælisdegi ástarinnar sinnar. Hún segir ekkert meira „hot“ en að sjá hann blómstra í föðurhlutverkinu.

Förðunarfræðingurinn Lilja Dís Smára segir það vera mikinn heiður hafa fengið að farða Diljá í Söngvakeppninni. „Ég gaf sál mína og hjarta í þetta stóra verkefni og það gekk allt upp eins og ég sá það fyrir mér,“ segir hún.

Siggi Gunnars og kærasti hans Sigmar Ingi njóta lífsins saman.

Áslaug Arna gæddi sér á gellum í Grindavík.

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason gaf út sitt  fyrsta lag, prettyboitjokko, og flutti það í útgáfuteiti á Auto um helgina.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Brúðkaup, flutningar og Kaupmannahöfn

Fyrsta vika febrúarmánaðar hér á landi var full af frumsýningum og sýningaropnunum. Íslendingar eru þó alltaf á farandsfæti og voru margar tískuskvísur sem gerðu sér ferð til Kaupmannahafnar í tilefni af tískuvikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×