Íslendingalið Bayern fer með forystu til Lundúna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni í leik kvöldsins.
Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni í leik kvöldsins. Adam Pretty/Getty Images

Íslendingalið Bayern München vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld og er því með forskot fyrir seinni leikinn sem fer fram í Lundúnum í næstu viku.

Þrjár íslenskar landsliðskonur eru á mála hjá Bayern en það eru þær Glódís Perla Viggósdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Glódís lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá þýska liðinu, en Karólína og Cecilía sátu báðar á bekknum.

Lea Schuller skoraði eina mark leiksins er hún kom heimakonum í forystu á 39. mínútu eftir stoðsendingu frá Maximiliane Rall.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube-rás DAZN og hægt er að horfa á hann aftur hér að neðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira