Lífið

Mynda­veisla: Hlust­enda­verð­launin 2023

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Rjóminn af íslensku tónlistarfólki steig á svið á Hlustendaverðlaununum á föstudaginn.
Rjóminn af íslensku tónlistarfólki steig á svið á Hlustendaverðlaununum á föstudaginn. Vísir/Hulda Margrét

Það var mikið um dýrðir í Háskólabíói á föstudaginn þegar Hlustendaverðlaunin voru veitt í tíunda sinn. 

Kynnar kvöldsins voru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir. Það er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til á þessari uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar sem útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa fyrir.

Sjá: Þessi hlutu Hlust­enda­verð­­­launin í ár

Boðið var upp á sannkallaða tónlistarveislu því fram komu Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessu vel heppnaða kvöldi.

Háskólabíó í fallegum búningi fyrir kvöldið.Vísir/Hulda Margrét
Útvarpsmennirnir Rikki G og Egill Ploder.Vísir/Hulda Margrét
Kynnar kvöldsins, Gústi B, Þórdís Vals og Egill Ploder.Vísir/Hulda Margrét
Emmsjé Gauti flutti lagið Klisja og í bakgrunni voru fallegar brúðkaupsmyndir af honum og eiginkonu hans, Jovönu Schally. Vísir/Hulda Margrét
Fjölmiðlakonurnar Dóra Júlía og Lilja Katrín veitu verðlaun fyrir plötu ársins.Vísir/Hulda Margrét
Plata ársins var Dætur með Friðriki Dór.Vísir/Hulda Margrét
Tónlistarkonan Klara Elias tók lagið sitt Eyjanótt.Vísir/Hulda Margrét
Stórglæsileg í bleiku.Vísir/Hulda Margrét
Vala Eiríks af Bylgjunni og Ómar Úlfur Eyþórsson af X-inu.Vísir/Hulda Margrét
Tónlistarkonan Bríet var kosin söngkona ársins, flytjandi ársins og átti hún lag ársins. Hún gat ekki verið viðstödd en flutti þakkarræðu í gegnum tæknina.Vísir/Hulda Margrét
Pálmi Ragnar Ásgeirsson fékk verðlaun fyrir upptökustjórn og hljóðblöndun. Vísir/Hulda Margrét
Idol stjarnan Saga Matthildur tók lag sitt Leiðina heim.Vísir/Hulda Margrét
Saga vinnur nú að nýrri plötu.Vísir/Hulda Margrét
Nýliði ársins, rapparinn Daniil, faðmar vin sinn.Vísir/Hulda Margrét
Reykjavíkurdætur fengu verðlaun fyrir myndband ársins við lagið Turn This Around.Vísir/Hulda Margrét
Reykjavíkurdóttirin Þuríður Blær.Vísir/Hulda Margrét
Þær tóku svo að sjálfsögðu lagið.Vísir/Hulda Margrét
Sviðsmyndin var virkilega töff.Vísir/Hulda Margrét
Bríet var stödd í Kaupmannahöfn þar sem hún var með tónleika ásamt Herra Hnetusmjöri.Vísir/Hulda Margrét
Útvarpsfólkið Sighvatur Jónsson og Sigga Lund veittu verðlaun á hátíðinni.Vísir/Hulda Margrét
Bubbi Morthens var kosinn lagahöfundur ársins.Vísir/Hulda Margrét
Daniil og Joey Christ fluttu lagið Ef þeir vilja beef, sem var með vinsælustu rapplögum síðasta árs.Vísir/Hulda Margrét
Atriðið var stórskemmtilegt.Vísir/Hulda Margrét
Sögulegt augnablik átti sér stað þegar þeir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar fluttu lagið Komdu til baka.Vísir/Hulda Margrét
Þeir tóku einnig nýja lagið sitt Ég er.Vísir/Hulda Margrét
Það var öllu til tjaldað við atriðið.Vísir/Hulda Margrét
Kynnar kvöldsins stóðu sig með prýði.Vísir/Hulda Margrét
Friðrik Dór fagnar. Hann var kosinn söngvari ársins og átti plötu ársins.Vísir/Hulda Margrét
Una Torfa tók lagið en hún var tilnefnd sem Nýliði ársins.Vísir/Hulda Margrét
Una Torfa sendir aðdáendum fingurkoss.Vísir/Hulda Margrét
Stjórn KÍTÓN veitti sérstök verðlaun.Vísir/Hulda Margrét
Tónlistarkonan Hildur Kristín hlaut KÍTÓN verðlaunin.Vísir/Hulda Margrét
Ólafur Egilsson tók við heiðursverðlaunum föðurs síns, Egils Ólafssonar. Hér er hann ásamt Ívari Guðmundssyni.Vísir/Hulda Margrét
Eyþór Ingi heiðraði Egil Ólafsson með sérstakri syrpu af hans lögum.Vísir/Hulda Margrét
Magnaður flutningur Eyþórs.Vísir/Hulda Margrét
Stórsöngkonan Diddú steig á svið með Eyþóri.Vísir/Hulda Margrét
Þórdís Vals skein skært í pallíettunum.Vísir/Hulda Margrét
Egill Ploder tók sig vel út í kynnahlutverkinu.Vísir/Hulda Margrét
Gústi B var flottur í bláum jakkafötum.Vísir/Hulda Margrét
Hljómsveitin Superserious.Vísir/Hulda Margrét
Daníel Jón Jónsson úr Superserious.Vísir/Hulda Margrét
Sveitin tók lagið Bye bye honey.Vísir/Hulda Margrét
Nýliði ársins, rapparinn Daniil.Vísir/Hulda Margrét


Tengdar fréttir

Þessi hlutu Hlust­enda­verð­­­launin í ár

Hlustendaverðlaunin voru afhent í Háskólabíói í kvöld. Þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt og var öllu tjaldað til. Sýnt var frá viðburðinum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×