Menning

Gerður Krist­ný, Kristín Svava og Arn­­dís hlutu Fjöru­verð­­launin 2023

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þær Gerður Kristný, Kristín Svava og Arndís hlutu Fjöruverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í dag.
Þær Gerður Kristný, Kristín Svava og Arndís hlutu Fjöruverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í dag.

Rithöfundarnir Gerður Kristný, Kristín Svava Tómasdóttir og Arndís Þórarinsdóttir fengu í dag afhent Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi. Þau voru afhent í sautjánda sinn við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal ráðhússins í Reykjavík í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Í flokki fagurbókmennta hlaut Gerður Kristný verðlaunin fyrir bókina Urtu. Kristín Svava Tómasdóttir hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fyrir bókina Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Þá hlaut Arndís Þórarinsdóttir verðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir bókina Kollhnís.

Rökstuðningur dómnefndar:

Urta eftir Gerði Kristnýju

„Ljóðmælandi Urtu eftir Gerði Kristnýju er kona sem býr við nyrsta haf. Lífsbaráttan er hörð, vetur herja með hafís og kulda. Maðurinn deyr, barn deyr og önnur áföll fylgja en konan og börn hennar gefast aldrei upp. Þau þrauka. Konan hjálpar urtu að kæpa, mörk milli manns og dýrs, menningar og náttúru hverfa í þessari göldróttu bók. Textinn er meitlaður, ljóðin hefðbundin í formi með stuðlum og innrím sem minnir á forna bragarhætti. Það undirstrikar einnig tímaleysi og skírskotun verksins til þeirrar stöðugu lífsbaráttu sem er hlutskipti manna og dýra.“

Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur

„Á horni Þingholtsstrætis og Spítalastígs stendur yfir aldargamalt, tveggja hæða timburhús með viðburðaríka sögu; fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga, farsóttarspítali, geðsjúkrahús og gistiskýli fyrir heimilislausa. Í dag er það mannautt og ber dulúðlegt nafn með rentu. Í Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 rekur Kristín Svava Tómasdóttir sögu þessa merka húss, sem umfram allt er litrík saga fólksins sem húsið hýsti og samfélagsins sem skóp það.“

Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur

„Í Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur er hinn ungi Álfur fimleikastrákur aðalsöguhetjan og sögumaðurinn. Eftir því sem frásögn hans vindur fram kemur í ljós að sjónarhorn Álfs er ekki mjög áreiðanlegt enda neitar hann að horfast í augu við að litli bróðir hans sé einhverfur, að frænka hans eigi við fíknivanda að etja og að besti vinur hans sé lesblindur. Höfundur leikur fimlega á allan tilfinningaskalann og teflir fram sögumanni sem eignast hugi og hjörtu lesenda á öllum aldri. Sagan er í senn áhrifamikil, skemmtileg og spennandi en fyrst og fremst full af hlýju og mennsku.“

Hér fyrir neðan má lista yfir aðra höfunda sem hlutu tilnefningar sem og dómnefnd í hverjum flokki fyrir sig.

Barna- og unglingabókmenntir:

  • Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur

  • Héragerði. Ævintýri um súkkulaði og kátínu eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur

  • Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur

Dómnefnd skipuðu Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor í íslensku, Brynja Helgu Baldursdóttir, íslenskufræðingur og Guðlaug Richter, íslenskufræðingur.

Fræðibækur og rit almenns eðlis

  • Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar eftir Önnu Sigríði Þráinsdóttur og Elínu Elísabetu Einarsdóttur

  • Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur

  • Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur

Dómnefnd skipuðu  Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, sagnfræðingur, Sigrún Birna Björnsdóttir, framhaldsskólakennari og Sigrún Helga Lund, tölfræðingur.

Fagurbókmenntir

  • Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur

  • Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur

  • Urta eftir Gerði Kristnýju

Dómnefnd skipuðu Dagný Kristjánsdóttir, bókmenntafræðingur, Júlía Margrét Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur og Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur.


Tengdar fréttir

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna 2023 afhjúpaðar

Mikið var um dýrðir á Borgarbókasafninu í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar níu bækur voru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi.

Fríða, Sig­rún, Margrét og Linda fengu Fjöru­verð­launin 2022

Rithöfundarnir Fríða Ísberg, Sigrún Helgadóttir, Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir fengu í dag afhent Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, við hátíðlega athöfn í Höfða í Reykjavík. Þetta er í sextánda sinn sem verðlaunin eru afhent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×