Lífið

Ó­­­dýrustu miðarnir á Euro­vision kosta fimm þúsund krónur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bikarinn frá árinu 2018 þegar keppnin fór fram í Lisbon. Í ár verður úkraínski fáninn á bikarnum eftir sigur Úkraínu í fyrra.
Bikarinn frá árinu 2018 þegar keppnin fór fram í Lisbon. Í ár verður úkraínski fáninn á bikarnum eftir sigur Úkraínu í fyrra. Getty/Pedro Fiúza

Miðar á undanúrslitakvöld Eurovision í Liverpool kosta á bilinu þrjátíu til 290 pund, fimm þúsund til fimmtíu þúsund krónur. Miðar á úrslitin eru aðeins dýrari, fjórtán til 64 þúsund krónur. 

Miðasalan á Eurovision í Liverpool hefst á fimmtudaginn í næstu viku klukkan tólf að hádegi. Salan fer fram á bresku heimasíðu miðasölunnar Ticketmaster. Til þess að kaupa miða þarf að eiga aðgang á síðunni og er fólk hvatt til þess að stofna aðgang áður en salan hefst. 

Þegar keyptir eru miðar á Eurovision er einungis hægt að kaupa miða á eitt kvöld í einu. Hver notandi getur keypt að mesta kosti fjóra miða en einnig er í boði að kaupa miða á æfingar fyrir keppnina sjálfa og þá er hægt að kaupa sex miða í einu. 

Fyrra undankvöld Eurovision verður þriðjudaginn 9. maí og það seinna, þar sem atriði Íslands stígur á svið, fer fram fimmtudaginn 11. maí. Úrslitin eru síðan laugardaginn 13. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×