Viðskipti erlent

Loka Noma og snúa sér að matvælaframleiðslu

Kjartan Kjartansson skrifar
Í framtíðinni gæti Noma verið rekið sem farandveitingahús hér og þar um heiminn. Staðurinn er þegar byrjaður að prófa sig áfram með það, þar á meðal í Sydney í Ástralíu.
Í framtíðinni gæti Noma verið rekið sem farandveitingahús hér og þar um heiminn. Staðurinn er þegar byrjaður að prófa sig áfram með það, þar á meðal í Sydney í Ástralíu. Vísir/EPA

Eigendur danska veitingastaðarins Noma hafa ákveðið að loka honum, að minnsta kosti tímabundið og snúa sér að matvælaframleiðslu í staðinn. Noma hefur lengi verið talinn besti eða einn af bestu veitingastöðum heims.

Húsnæði Noma á Refshale-eyju við Kaupmannahöfn verður breytt í matarrannsóknastöð þar sem nýir réttir verða þróaðir, að sögn danska ríkisútvarpsins. Mögulega verði veitingastaðurinn opnaður aftur í Danmörku og erlendis við og við.

Rene Redzepi, kokkur og einn eigenda Noma, segir Belingske að mögulega verði staðurinn opinn eina árstíð á ári í Kaupamannahöfn eða einhvers staðar annars staðar í heiminum. Ekkert liggi þó fyrir um slík áform ennþá. Í haust var greint frá því að Noma yrði fluttur frá Kaupmannahöfn og yrði að nokkurs konar flökkuveitingastað hér og þar um heiminn í stutta stund á hverjum stað.

Noma í núverandi mynd verður lokað í lok árs 2024. Redzepi segir New York Times að ómögulegt sé að tryggja nærri hundrað starfsmönnum sanngjörn laun á sama tíma og haldið sé í gæði og verð fari ekki úr hófi fram.

Danski stjörnukokkurinn Rene Redzepi sem rekur Noma í Danmörku.Vísir/EPA

„Við verðum að endurhugsa iðnaðinn frá grunni. Þetta er einfaldlega of erfitt og við verðum að vinna öðruvísi,“ segir hann.

Fínustu veitingastaðir heims hafa legið undir vaxandi gagnrýni fyrir að ganga nærri starfsfólki sínu. Það sé oft illa eða jafnvel ólaunað. Noma hefur þannig verið sakað um að fara illa með erlent verkafólk og reiða sig á ólaunaða starfsnema. Sú gagnrýni leiddi til þess að staðurinn byrjaði að greiða nemum en um leið jókst rekstrarkostnaðurinn umtalsvert.

Noma var valinn besti veitingastaður heims á lista World's 50 best restaurants í fimmta skipti í fyrra. Enginn annar staður hefur náð þeim árangri og Noma verður ekki lengur gjaldgengur til þess að hljóta þann heiður aftur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×