Handbolti

Fimmtíu bestu: Öldungurinn í markinu, georgískur bombari og undrabarn frá Selfossi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hverjir enduðu í 50.-46. sæti?
Hverjir enduðu í 50.-46. sæti? grafík/hjalti

Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-46. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

50. Hlynur Morthens

  • Lið: Grótta/KR, Fylkir, Stjarnan, Valur
  • Staða: Markvörður
  • Fæðingarár: 1975
  • Íslandsmeistari: 2017
  • Bikarmeistari: 2011, 2016, 2017
  • Deildarmeistari: 2015
  • Silfur: 2010
  • Leikir í deild: 333
  • Mörk í deild: 2
  • Leikir í úrslitakeppni: 42
  • Mörk í úrslitakeppni: 0

Það var erfitt að samgleðjast ekki með Hlyni Morthens, Gunnleifi Gunnleifssyni handboltans, þegar hann lauk löngum ferli með því að verða Íslandsmeistari með Val vorið 2017, þá 42 ára.

Hlynur er fæddur 1975 og var byrjaður að spila í meistaraflokki áður en margir samherja hans voru fæddir. Framan af ferlinum kom hann víða við og var sjaldnast í neitt frábærum liðum en það breyttist þegar hann fór í Val 2009.

Þá, nánast orðinn hálffertugur, hófst besti hluti ferils Hlyns og hann gerði sitt til að sanna kenninguna um að markverðir toppi seinna en aðrir leikmenn. Hlynur var langoftast fínn og stundum frábær og hjálpaði Val að verða bikarmeistari 2011 og 2016 og deildarmeistari 2015.

Hlynur Morthens lyftir Íslandsmeistarabikarnum 2017.vísir/andri marinó

Síðasta tímabilið á hans langa ferli var svo það besta. Framan af stefndi þó ekkert í það. Valur varð vissulega bikarmeistari 2017 en endaði í 7. sæti í Olís-deildinni. Valsmenn voru hins vegar á miklu skriði í Áskorendabikarnum á sama tíma og nýttu meðbyrinn í úrslitakeppninni. Þar stóðu þeir uppi sem sigurvegarar eftir að hafa unnið FH í oddaleik í Kaplakrika. 

Valur vann því tvöfalt, deild og bikar, og komst í undanúrslit Áskorendabikarsins. Og Hlynur hætti sannarlega á toppnum. Ferilinn var langur, viðburðarríkur og endaði á besta mögulega hátt.

49. Jón Þorbjörn Jóhannsson

  • Lið: Fram, Haukar
  • Staða: Línumaður
  • Fæðingarár: 1982
  • Íslandsmeistari: 2015, 2016
  • Bikarmeistari: 2014
  • Deildarmeistari: 2013, 2014, 2016
  • Silfur: 2013, 2014, 2019
  • Besti varnarmaður: 2013, 2014
  • Leikir í deild: 150
  • Mörk í deild: 316
  • Leikir í úrslitakeppni: 58
  • Mörk í úrslitakeppni: 112

Leikmönnum sem spiluðu gegn Jóni Þorbirni Jóhannssyni leið eflaust eins og persónu Bens Stiller leið þegar hann spilaði körfubolta við loðna risann í kvikmyndinni Along Came Polly. Það var eflaust frekar óþægilegt eins og minni varnarmenn fengu að kynnast þegar hann plantaði sér á þá. Þeir rétt náðu honum upp í handarkrika og gátu enga björg sér veitt þegar hann fékk boltann, sneri og skoraði langoftast.

Eftir að hafa spilað lengst af í Danmörku kom Jón Þorbjörn heim 2012 og gekk í raðir Hauka. Þar spilaði hann síðustu sjö tímabilin á ferlinum. Og á þeim vann hann sex stóra titla, þar á meðal Íslandsmeistaratitilinn í tvígang (2015 og 2016).

Jón Þorbjörn Jóhannsson vann fjölmarga titla með Haukum.vísir/daníel

Jón Þorbjörn var frábær í vörn Hauka sem beið oftast frekar aftarlega og bauð mótherjunum upp á að reyna að skjóta yfir fjóra tveggja metra menn. Svo voru þeir Heimir Óli Heimisson mjög sniðugir að stilla sér upp á minni varnarmenn og nýta sér líkamlega yfirburði gegn þeim.

Þegar Jón Þorbjörn var uppi á sitt besta með Haukum bankaði hann fast á landsliðsdyrnar og herslumuninn vantaði til að hann fengi almennilegt tækifæri með landsliðinu. En árin með Haukum voru frábær.

48. Guðmundur Hólmar Helgason

  • Lið: Akureyri, Valur, Selfoss
  • Staða: Leikstjórnandi/vinstri skytta
  • Fæðingarár: 1992
  • Bikarmeistari: 2016
  • Deildarmeistari: 2011, 2015
  • Valdimarsbikar: 2016
  • Besti varnarmaður: 2015, 2016
  • Leikir í deild: 190
  • Mörk í deild: 776
  • Leikir í úrslitakeppni: 37
  • Mörk í úrslitakeppni: 113

Guðmundur Hólmar Helgason kom fyrst inn á handboltakortið sem óvenju bráðþroska leikmaður í frábæru liði Akureyrar tímabilið 2010-11. Akureyringar urðu þá deildarmeistarar og komust í bikarúrslit og úrslit um Íslandsmeistaratitilinn.

Þrátt fyrir ungan aldur sást að Guðmundur Hólmar myndi ná langt enda með líkamsburði á við fullvaxta karldýr og jafnvígur á báðum endum vallarins. Og líklega var varnarleikurinn meiri styrkur hjá honum en sóknarleikurinn enda kom hann sér inn í íslenska landsliðið sem varnarmaður.

Guðmundur Hólmar Helgason fagnar marki í leik með Selfossi.vísir/hulda margrét

Eftir góð ár í upphafi ferilsins með Akureyri fór Guðmundur Hólmar til Vals 2013 ásamt frænda sínum, Geir Guðmundssyni. Þeir urðu deildarmeistarar 2015 og bikarmeistarar 2016 með Valsmönnum en þá vantaði alltaf herslumuninn til að fara alla leið í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Eftir að hafa spilað erlendis í nokkur ár sneri Guðmundur Hólmar aftur heim 2021 og gekk í raðir Selfoss. Meiðsli settu strik í reikning hans á síðasta tímabili en núna er hann kominn aftur á ferðina og er liðinu ómetanlegur.

47. Tite Kalandadze

  • Lið: ÍBV, Stjarnan
  • Staða: Vinstri skytta
  • Fæðingarár: 1972
  • Bikar: 2006, 2007
  • Silfur: 2005
  • Besti leikmaður: 2005
  • Markahæstur í úrslitakeppni: 2005
  • Leikir í deild: 43
  • Mörk í deild: 254
  • Leikir í úrslitakeppni: 9
  • Mörk í úrslitakeppni: 66

Roland Eradze var ekki bara frábær markvörður fyrir ÍBV heldur hjálpaði hann liðinu að fá landa sinn, Tite Kalandadze. Georgíska stórskyttan, sem hafði átt flottan feril, var ekki lengi að stimpla sig inn með ÍBV og átti ásamt Roland stærstan þátt í því að liðið komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn 2005. 

ÍBV hljóp þar á Haukavegginn en Tite sýndi frábæra takta í úrslitakeppninni þar sem hann var með rúmlega sjö mörk að meðaltali í leik.

Stjörnumenn voru hrifnir af því sem þeir sáu og fóru til Eyja og buðu Tite og Roland gull og græna skóga sem þeir þáðu. Talað var um að Tite væri jafnvel dýrasti íþróttamaður Íslandssögunnar. Og síðan varð Stjarnan reyndar nánast gjaldþrota en það er önnur og leiðinlegri saga.

Tite Kalandaze er einhver beittasti sóknarmaður sem hefur leikið í deildinni.fréttablaðið

Burtséð frá langtíma afleiðingunum borguðu kaupin á Tite og Roland sig allavega til skamms tíma enda varð Stjarnan bikarmeistari tvö ár í röð (2006 og 2007). Tite skoraði sjö mörk í báðum úrslitaleikjunum og Roland varði eins og óður maður í þeim.

Tite var mikil skytta, gríðarlega hraustur og öflugur í vörn. Og þrátt fyrir að hafa aðeins spilað tvö og hálft tímabil á Íslandi markaði Tite djúp spor í deildina hér heima og er einn besti erlendi leikmaður sem hefur spilað í henni. Í 52 leikjum í deild og úrslitakeppni gerði hann 320 mörk, eða 6,15 mörk að meðaltali í leik sem er engin slor tölfræði.

46. Haukur Þrastarson

  • Lið: Selfoss
  • Staða: Leikstjórnandi
  • Fæðingarár: 2001
  • Íslandsmeistari: 2019
  • Besti leikmaður: 2020
  • Valdimarsbikar: 2020
  • Markakóngur: 2020
  • Leikir í deild: 74
  • Mörk í deild: 358
  • Leikir í úrslitakeppni: 18
  • Mörk í úrslitakeppni: 82

Það er búið að skrifa mikið um Hauk Þrastarson og nota flest öll lýsingarorð um hann og brunnurinn fer að tæmast. En tvennt um hann. Það má ekki gleymast hversu fullskapaður hann kom inn í deildina. Hann var aðeins viðloðandi lið Selfoss 2016-17 en svo lykilmaður 2017-18 og einn besti leikmaður deildarinnar í þokkabót.

Selfyssingar voru afbragðs góðir tímabilið 2017-18 en enn betri tímabilið eftir þegar þeir fóru alla leið og urðu Íslandsmeistarar. Þar var Haukur í lykilhlutverki og frábær Robin fyrir Batmanninn Elvar Örn Jónsson.

Haukur Þrastarson hjálpaði til við að koma Selfossi á íslenska handboltakortið fyrir fullt og allt.vísir/vilhelm

Tímabilið eftir þurfti Haukur svo að skella svörtu skikkjunni á sig eftir að Elvar hélt til Danmerkur. Og hann stóð sannarlega undir þeirri ábyrgð. Selfossliðið 2019-20 var snargallað en Haukur hélt því á floti og var besti leikmaður deildarinnar. Eða bara langlanglangbesti leikmaður hennar.

Haukur var bæði marka- og stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar og ef tímabilið hefði verið klárað og lokahóf HSÍ haldið hefði hann hirt öll verðlaun sem hann hefði átt möguleika á að fá á því.* En þótt hógvægari mann sé vart hægt að finna vissi Haukur það eflaust sjálfur að hann var bestur.

*Höfundur tók sér það bessaleyfi að reikna með að Haukur hefði verið valinn bestur af leikmönnum og þjálfurum á lokahófi HSÍ 2020 og taka það með í einkunnagjöfina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×