Innlent

Út­húðar fyrr­verandi starfs­manni og segir fé­lags­dóm með ríkan sak­fellingar­vilja

Kjartan Kjartansson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifaði ádrepu um Gabríel Benjamín sem vann mál gegn stéttarfélaginu fyrir félagsdómi í gær.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifaði ádrepu um Gabríel Benjamín sem vann mál gegn stéttarfélaginu fyrir félagsdómi í gær. Vísir/Vilhelm

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kallar fyrrverandi trúnaðarmann starfsmanna Eflingar „fáránlegan einstakling“ og sakar hann um lygar og áróður gegn sér. Félagsdómur dæmdi uppsögn Eflingar á trúnaðarmanninum ólöglega í gær en formaður segir dóminn hafa haft „ríkulegan sakfellingarvilja“.

Uppsögn Eflingar á Gabríel Benjamín, trúnaðarmanni VR hjá félaginu, var talin ólögmæt og stríða gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Hún hafi jafnframt brotið gegn ákvæðum kjarasamnings VR við SA frá 2019. Gabríel Benjamín var á meðal þeirra sem var sagt upp í hópuppsögn eftir að Sólveig Anna náði aftur kjöri sem formaður Eflingar í fyrra.

Gabríel, sem gagnrýndi hópuppsögnin harðlega á sínum tíma, sagði Vísi eftir að dómurinn féll að það væri hlægilegt að stéttarfélag hegðaði sér með þessum hætti.

Svo virðist sem að ummæli Gabríels við Ríkisútvarpið um að dómurinn væri stór ósigur fyrir þá sem færu með vald sitt sem „einræðisherrar“ í gær hafi farið fyrir brjóstið á formanni Eflingar. Í færslu á Facebook-síðu sinni kallaði Sólveig Anna Gabríel „fáránlegan einstakling“ sem hefði skrifað „snarbilaða níðgrein“ um sig síðasta vetur. Svo virðist sem þar hafi hún vísað til greinar sem birtist á Vísi í febrúar þar sem Gabríel sakaði Sólveigu Önnu um sýndarmennsku.

„Hann er svo stórundarlega innréttaður að hann lét færa það sérstaklega til bókar í fundargerð að skipulagsbreytingin sem meirihluti stjórnar Eflingar samþykkti eftir að hafa unnið sigur í lýðræðislegum kosningum um forystu í félaginu væri framkvæmd af því að ég þyrði ekki að mæta honum og horfa í augun á honum!“ skrifaði Sólveig Anna við skjáskot af frétt RÚV með viðtali við Gabríel Benjamín.

Geti ekki lesið fyrir mikilmennskubrjálæði

Sakaði formaður Eflingar Gabríel um alls kyns lygar. Hann hefði borið út sögu um að hún hefði sjálf logið um að hún hefði orðið fyrir alvarlegri og grófri ofbeldishótun frá samstarfsmanni þeirra og sagt ósatt í fjölmiðlum um starfsemi Eflingar til þess að skapa hræðslu hjá félagsfólki um að hún og félagar hennar væru ekki færir um að stýra félaginu. Meðal annars hafi Benjamín logið því að Efling gæti ekki greitt út sjúkradagpening til fólks.

Hélt Sólveig Anna því fram að Gabríel hefði ekki sótt aftur um starf hjá Eflingu eftir hópuppsögnina vegna þess að hann hafi talið að hún ætti að hringja í hann og bjóða honum starfið „sökum stórkostlegrar sérstöðu hans í mannlegri tilveru!“.

„Og hann trúði því, og félagsdómur tekur undir þær trylltu ranghugmyndir af sínum ríkulega sakfellingarvilja, að hann einn, skrifstofuprinsinn sem ætlaði sér að „lýðræðisvæða“ Eflingu og frelsa undan yfirráðum lýðræðislega kjörins félagsfólks, ætti að vera undanskilinn skipulagsbreytingunni. Og hann kallar mig einræðisherra fyrir að hafa ekki talið rétt að krýna hann sérstakan skrifstofuprins Eflingar. Þetta er svo gjörsamlega fáránlegt að ég get ekki annað en hlegið,“ skrifaði Sólveig Anna sem virtist þó hafa allt annað en hlátur í huga.

Kallar Sólveig Anna dóm félagsdóm „rusl dóm“ í svari við ummælum við færsluna.

Þá vændi hún Gabríel um að skilja ekki dóm félagsdóms enda ætti hann sennilega erfitt með að lesa sér til gangs vegna yfirþymandi mikilmennskubrjálæðis.

„Þetta er ekki dómur um þá skipulagsbreytingu sem við framkvæmdum, nauðsynlega, réttmæta og árangursríka. Hún er lögmæt. Hún stendur. Og því fær ekkert breytt,“ skrifaði Sólveig Anna.

Innan við mánuður er frá því að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Eflingu til að greiða þremur fyrrverandi starfsmönnum sem var sagt upp bætur vegna bágrar framkomu gagnvart þeim, meðal annars með meiðandi umfjöllun og áminningu án lögmæts tilefnis.

Færsla Sólveigar Önnu í heild sinni er hér fyrir neðan.

Þessi fáránlegi einstaklingur sendi mönnum útí bæ persónuleg skilaboð um að ég væri að ljúga þegar ég sagði frá alvarlegri og grófri ofbeldishótun sem ég varð fyrir frá samstarfsmanni hans. Allt sem ég sagði var „pjúra lygi“ samkvæmt þessum manni. Hann skrifaði snarbilaða níðgrein um mig síðasta vetur, uppfulla af grófum persónuárásum og lygum. Hann er svo stórundarlega innréttaður að hann lét færa það sérstaklega til bókar í fundargerð að skipulagsbreytingin sem meirihluti stjórnar Eflingar samþykkti eftir að hafa unnið sigur í lýðræðislegum kosningum um forystu í félaginu væri framkvæmd af því að ég þyrði ekki að mæta honum og horfa í augun á honum! Hann sagði ítrekað ósatt í fjölmiðlum um starfsemi skrifstofu Eflingar til að skapa hræðslu hjá félagsfólki og til að breiða út áróður um að ég og félagar mínir gætum ekki stýrt Eflingu. Meðal annars laug hann því að við gætum ekki greitt út sjúkradagpeninga til fólks, gætum ekki tryggt ein mikilvægustu réttindi félagsfólks. Hann sótti svo ekki einu sinni um starf aftur hjá félaginu, eins og allt starfsfólk var hvatt til að gera. Hversvegna? Jú, af því að hann trúði því að ég ætti að hringja í hann og bjóða honum starfið (eða bjóða honum á fund til að horfa í augun á honum) sökum stórkostlegrar sérstöðu hans í mannlegri tilveru! Og hann trúði því, og félagsdómur tekur undir þær trylltu ranghugmyndir af sínum ríkulega sakfellingarvilja, að hann einn, skrifstofu-prinsinn sem ætlaði sér að „lýðræðisvæða“ Eflingu og frelsa undan yfirráðum lýðræðislega kjörins félagsfólks, ætti að vera undanskilinn skipulagsbreytingunni. Og hann kallar mig einræðisherra fyrir að hafa ekki talið rétt að krýna hann sérstakann skrifstofuprins Eflingar. Þetta er svo gjörsamlega fáránlegt að ég get ekki annað en hlegið.

Annars virðist hann ekki skilja dóminn, enda er sennilega erfitt að lesa sér til gagns þegar að mikilmennskubrjálæðið er svona yfirþyrmandi. En ég kem því þá hér með á framfæri: Þetta er ekki dómur um þá skipulagsbreytingu sem við framkvæmdum, nauðsynlega, réttmæta og árangursríka. Hún er lögmæt. Hún stendur. Og því fær ekkert breytt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×