Lífið samstarf

Eigandi Eikund í VEST

Vest
Elísabet Helgadóttir eigandi hönnunarverslunarinnar Vest í stólnum Fluffy frá norska framleiðandanum Eikund. Stofnandi Eikund heldur kynningu í Vest á morgun, 16. nóvember.
Elísabet Helgadóttir eigandi hönnunarverslunarinnar Vest í stólnum Fluffy frá norska framleiðandanum Eikund. Stofnandi Eikund heldur kynningu í Vest á morgun, 16. nóvember. Vilhelm

Hönnunarbúðin VEST fagnar tveggja ára afmæli nú í janúar. Rúmgóður sýningarsalur VEST sker sig sannarlega úr og minnir helst á listgallerý þar sem hágæða tímalausa hönnun frá Ítalíu, Noregi og Svíþjóð fær að njóta sín. Andrúmsloftið er rólegt og þægilegt og kaffið frábært. Nýlega hefur VEST kynnt hið einstaka Norksa fyrirtæki Eikund í verslun sinni að Ármúla, 17.

„Eikund er mjög flott frumkvöðlafyrirtæki í norsku hönnunarsenunni og er að hasla sér völl víða um heim. Okkur þykir afar vænt um að þau völdu okkur sem samstarfsaðila hér á Íslandi,“ segja þau Elísabet Helgadóttir og Pétur Pétursson, eigendur Vest. 

Eigandi Eikund mun halda kynningu í VEST á morgun, miðvikudag milli klukkan 17 og 19. Boðið verður upp á léttar veitingar og mun Davíð Sigurgeirsson skemmta.

Hönnunargullmolar sjötta og sjöunda áratugarins fá nýtt líf

Stóllinn Fluffy úr smiðju Eikund ber með sér yfirbragð skandinavískrar hönnunar eins og hún gerðist best á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar enda var hann hannaður árið 1954 af Fredrik A. Kayser. Fredrik þessi var norskur og hannaði gullfalleg húsgögn á þessum árum sem mörg má finna í sýningarsal VEST.

Pétur situr hér í stólnum Veng sem er hans uppáhalds stóll frá Eikund. Stólinn hannaði Torbjørn Bekke árið 1960.Vilhelm

Framleiðslu húsgagna Kaysers var reyndar hætt á áttunda áratugnum eins og raunin varð með fleiri húsgögn frá þessum tíma í Noregi. Mörg þessara húsgagna, meðal annars Fluffy, gengu þó nýlega í endurnýjun lífdaga þegar Jørgen Tengesdal stofnandi Eikund hóf sína fjársjóðsleit eins og hann lýsir því, að gleymdum norskum hönnunargullmolum.

Fjársjóðsleit að hönnunararfinum

„Við spurðum okkur af hverju Noregur hefur ekki gert það sama og Danmörk og hampað allri þessari frábæru húsgagnahönnun. Þetta er okkar hönnunararfur og ungir norskri hönnuðir leita til þessa tímabils í norskri hönnunarsögu enn í dag eftir innblæstri. Við hófum því árið 2015 að leita þessi húsgögn uppi, safna teikningum og leyfum til þess að hefja framleiðslu á þeim á ný,“ segir Jørgen. 

„Í dag framleiðum við ellefu hluti og eigum framleiðsluréttinn að um sjötíu hlutum til viðbótar. Þessi fjársjóðsleit okkar að hönnunarperlum hefur verið frábært ferðalag og allir hafa tekið þessu verkefni vel. Þegar við hittum börn þessara hönnuða og spyrjum um teikningar eru þau glöð yfir að verk foreldra þeirra fari aftur í framleiðslu. Þarna úti eru mörghundruð hlutir sem gætu farið aftur í umferð, við eigum því mikið verk fyrir höndum,“ segir Jørgen.

Jørgen Tengesdal stofnandi Eikund heldur kynningu í Vest á morgun, 16. nóvember.Eikund

Hann segir norska hönnuði sjötta og sjöunda áratugarins hafa staðið fyllilega jafnfætis þeim dönsku. Nöfn þeirra norsku hafi gleymst þar sem framleiðslunni var hætt meðan húsgögn „dönsku meistaranna“ hafi verið framleidd sleitulaust og markað sér svo rækilegt pláss að þegar talað er um skandinavíska hönnun dettur okkur flestum dönsk hönnun í hug. En af hverju lognaðist norsk húsgagnaframleiðsla út af?

„Við fundum olíu,“ segir Jørgen einfaldlega. „Olían varð þungamiðjan í norskum iðnaði, þar voru störfin og peningarnir og ýmis annar iðnaður fjaraði því út. En við getum ekki kvartað, olían hefur fært Noregi mikinn auð,“ segir Jørgen.

Fann sama drifkraftinn í VEST og spennandi samstarf framundan

„Ég vil gera hluti þar sem ég get haft áhrif, það heldur mér gangandi,“ segir Jørgen. Hann líti á sig sem frumkvöðul og vill láta verkin tala. Hann hafi hitt sama drifkraftinn fyrir í þeim Elísabetu og Pétri og framundan sé spennandi samstarf við VEST.

Stóllinn Hunter er nýjasta framleiðsluvara Eikund. Stólinn hannaði Torbjørn Afdal árið 1960.Eikund

„Við Elísabet og Pétur eigum í frábæru samstarfi. Það er mikill kraftur í þeim og þau eru nú þegar með mikið af húsgögnum frá Eiklund í þessari glæsilegu verslun. Ég hlakka mikið til að koma til Íslands og kynna Eikund enn frekar en við ætlum að halda góða kynningu þann 16. nóvember," segir Jørgen. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×