Innlent

Sér engar al­var­legar á­bendingar um lög­brot

Tryggvi Páll Tryggvason og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist ekki sjá neinar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.  Hann segir að vandlega verði farið yfir þær ábendingar sem finna má í skýrslunni.

Ríkisendurskoðun hefur lokið við skýrslu sína um söluna á Íslandsbanka og skilað til Alþingis. 

Skýrslan var birt á vef Ríkisendurskoðunar í morgun eftir að henni var lekið til fjölmiðla í gær. Bankasýsla ríkisins sá um sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í lokuðu útboði til svokallaðra hæfra fjárfesta með tilboðsfyrirkomulagi. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að fjölþættir annmarkar hafi verið á söluferlinu.

Bjarni ræddi skýrsluna í viðtali við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur, fréttamann Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar í Alþingishúsinu í dag.

„Fyrstu viðbrögð eru þau að það er gott að hafa loksins fengið skýrsluna. Það eru fjölmargar ábendingar í skýrslunni sem að við hljótum að taka til okkar og meta, til dæmis varðandi framhaldið,“ sagði Bjarni.

Aðspurður um það sem fram kom í skýrslunni um að mögulega hafi ríkissjóður getað fengið hærra verð fyrir hlut sinn í Íslandsbanka í útboðinu, vísaði Bjarni til þess að það væri ekki svo að verðið eitt réði förinni.

„Ég er bara algjörlega ósammála því að lög setji svo slík skilyrði við söluna að það eitt eigi að trompa öll önnur markmið stjórnvalda. Við vorum skýr við öllu samtali við þingið og höfum verið opin með það nákvæmlega hvernig við erum að vega og meta þessu atriði saman, að verðið eitt og sér var ekki ráðandi og trompaði öll sjónarsmið sem við erum að vinna að,“ sagði Bjarni.

Bíður eftir ábendingum þingsins

Hann segist ætla sér að axla ábyrgð á málinu með því að hlusta eftir ábendingum og leggja til breytingar á söluferlinu, en íslenska ríkið á enn stóran hlut í Íslandsbanka.

„Við tökum ábyrgð á þessu máli með því að leggja til breytingar á sölufyrirkomulaginu. Hlusta eftir ábendingum sem að koma fram í þessari skýrslu og hafa birst í umræðu. Nú er þessi skýrsla komin til þingsins til þess að fá meðferð þannig að ég bíð auðvitað eftir niðurstöðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, ábendingum sem kunna að koma frá þinginu um atriði sem við ættum að skoða til lengri tíma litið,“ sagði Bjarni.

Fulltrúar stjórnarandstöðu segja skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka áfellisdóm yfir stjórnvöldum. Kallað er eftir að rannsóknarnefnd Alþingis verði kölluð saman til að fara nánar ofan í saumana á málinu. Bjarni telur hins vegar að ekki sé þörf á því en segir að slíkar beiðnir komi ekki á óvart.

„Ég hefði getað skrifað þessa frétt fyrir þig fyrir einhverjum dögum að þetta yrði sagt. En staðreyndin er sú að það eru ekki neinar vísbendingar um alvarleg brot, lögbrot, í þessari skýrslu. Svo sannarlega ekki hjá fjármálaráðuneytinu. Síðan eru að öðru leyti bara margvíslegar ábendingar um það sem betur hefði mátt fara. Svona rannsóknarnefndir hefur Alþingi sem úrræði þegar menn sjá fyrir sér að það sé rökstuddur grunur um að menn hafi farið á svig við lög og það hafi orðið af því mikið tjón fyrir einhvern eða einhverja stærri almannahagsmuni. Ég bara sé ekki slík mál í þessu tilviki sem kalli á slíka rannsókn,“ sagði Bjarni.

Sér engar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot

Aðspurður um hvort að Bjarni væri sáttur við niðurstöðu úttektarinnar, sagðist Bjarni ánægður með að vera kominn með hana í hendurnar.

„Við munum fara ofan í sauma á þessum ábendingum sem má finna í skýrslunni. Það þarf að fara vandlega yfir þessa þætti sem þarf að ræða. Við munum hlusta eftir því sem eða við getum tekið til okkar. Ég sé engar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot í þessari skýrslu. Það finnst mér nú vera stærsta atriðið. Varðandi málið að öðru leyti þá get ég bara ítrekað það sem ég hef sagt hingað til, ég er mjög ánægður með það hvert við erum komin með það að losa ríkið út úr Íslandsbanka.“


Tengdar fréttir

Fjöl­þættir ann­markar á Ís­lands­banka­sölunni

Ríkisendurskoðun hefur lokið við skýrslu sína um söluna á Íslandsbanka og skilað til Alþingis. Skýrslan verður gerð opinber eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins um hana á morgun. Í skýrslunni er fjallað um „fjölþætta annmarka“ á undirbúningi og framkvæmd sölunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×