Guðrún og stöllur sófameistarar eftir misstig Linköping Valur Páll Eiríksson skrifar 24. október 2022 20:15 Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar eru sænskir meistarar annað árið í röð. Twitter @fotbollskanal Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í fótbolta, og stöllur hennar í Rosengård eru sænskir meistarar eftir jafntefli Linköping við Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Guðrún vinnur þar með titilinn annað árið í röð með félaginu.
Rosengård var með átta stiga forskot á Linköping fyrir leik kvöldsins þegar aðeins tvær umferðir voru eftir af deildinni. Linköping þurfti sigur til að minnka bilið í fimm stig, þegar sex stig voru í pottinum. Linköping komst 2-1 yfir gegn Kalmar á 55. mínútu í kvöld en það var hin bandaríska Alyssa Walker sem tryggði Kalmar stig með jöfnunarmarki stundarfjórðungi fyrir leikslok og tryggðu Rosengård þannig titilinn á sama tíma. SM-GUUUUULDHello number 13 #viärFCR #fcrosengård #tropådindröm pic.twitter.com/GvO0BDLRRh— FC Rosengård (@FCRosengard) October 24, 2022 Rosengård er með 60 stig á toppi deildarinnar en bæði Linköping og Kalmar eru með 53 þegar aðeins tveir leikir eru eftir og geta því mest fengið 59 stig. Rosengård er því meistari, annað árið í röð. Þetta er jafnframt þriðji titill Rosengård á fjórum árum en alls hefur liðið orðið sænskur meistari 13 sinnum, þar af átta sinnum frá 2010. Ekkert lið hefur unnið deildina oftar, en næst á eftir kemur Umeå með sjö titla. Guðrún er að vinna annan titilinn með félaginu en hún var einnig hluti af liðinu sem vann sænska meistaratitilinn á síðustu leiktíð. Hún gekk í raðir Rosengård frá Djurgården í fyrra.
Sænski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira