Innlent

Fjórtán ára strákar réðust á fólk af handahófi í miðbænum

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Lögregla hafði upp á drengjunum og voru þeir vistaðir á viðeigandi stofnun. 
Lögregla hafði upp á drengjunum og voru þeir vistaðir á viðeigandi stofnun.  Vísir/Vilhelm

Þrír fjórtán ára drengir voru handsamaðir í miðbæ Reykjavíkur í nótt eftir að hafa ráðist á fólk af handahófi á að minnsta kosti þremur stöðum. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en drengirnir slóu fólk í jörðina og spörkuðu meðal annars í höfuð fórnarlamba sinna. Þá voru þeir vopnaðir eggvopnum sem lögregla segir þá hafa ógnað fólki með en málið var afgreitt með aðkomu Barnaverndar og drengirnir vistaðir á viðeigandi stofnun. 

Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum vegna ölvunar en í einu tilfelli kom í ljós að ökumaður væri vopnaður eggvopnum. Voru þau haldlögð og verður maðurinn kærður fyrir vopnalagabrot. Einnig var ökumaður stöðvaður á Hafnarfjarðarvegi þar sem hann ók á 140 kílómetra hraða en hann reyndist sviptur ökuréttindum. 

Tveir einstaklingar í annarlegu ástandi voru handteknir og vistaðir í fangaklefa, annar þeirra í hverfi 104 og hinn í 108. 

Þá voru fjögur innbrot skráð í dagbók lögreglu, þar af þrjú í fyrirtæki í Árbæ og Breiðholti en ekki liggur fyrir hversu miklu var stolið þar. Í fjórða tilfellinu var um að ræða innbrot í verslun í Kópavogi þar sem sjóðsvélum með skiptimynt var stolið en málið er í rannsókn. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×