Lægðin grynnist smá saman Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2022 08:13 Reiknað er með að hiti verði á bilinu eitt til tíu stig í dag og verður mildast syðst. Vísir/Vilhelm Lægðin sem hefur stjórnað veðrinu á landinu síðustu daga er enn fyrir norðaustan land, en grynnist nú smám saman.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag snúist í norðan og norðvestan fimm til þrettán metra á sekúndu með með áframhaldandi rigningu eða slyddu norðantil. Á sunnanverðu landinu verður hins vegar þurrt og víða bjart veður. Reiknað er með að hiti verði á bilinu eitt til tíu stig, mildast syðst. „Það lægir víðast hvar á morgun og styttir smám saman upp fyrir norðan, en þó má búast við norðvestan strekkingi austantil á landinu fram á kvöld. Sunnan og suðaustan kaldi eða stinningskaldi á laugardag og rigning eða slydda með köflum víða um land, en á sunnudag er útlit fyrir hvassa norðanátt með talsverðri úrkomu um landið norðanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðvestan 8-15 m/s austantil á landinu, annars hægari vindur. Dálítil rigning eða slydda, en bjart með köflum um landið sunnanvert. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst. Úrkomulítið síðdegis og dregur úr vindi fyrir austan. Á laugardag: Gengur í suðaustan og austan 8-15 með rigningu eða slyddu á köflum. Snýst í hægari sunnanátt á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Gengur í hvassa norðlæga átt með talsverðri slyddu eða snjókomu, en úrkomulítið sunnantil. Hiti 0 til 6 stig. Á mánudag: Minnkandi norðvestanátt og dregur úr úrkomu. Svalt í veðri. Snýst í suðaustanátt sunnan- og vestanlands síðdegis og hlýnar með rigningu. Á þriðjudag: Breytileg átt og væta með köflum. Hiti 2 til 8 stig. Á miðvikudag: Breytileg átt og lítilsháttar rigning eða slydda. Kólnar aftur.
Veður Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira