Suðlæg átt með skúrum og rigningu Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2022 07:10 Hiti verður á bilinu sjö til þrettán stig í dag. Myndin er úr safni. Veðurstofan Útlit er fyrir suðlæga átt á landinu í dag með skúrum vestanlands en rigningu suðaustantil. Má reikna með að vindur verði á vilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu og hvassast á annesjum.
Á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis snúist í norðlæga átt með rigningu, fyrst sunnantil en síðan um allt land í nótt. Hiti verður á bilinu sjö til þrettán stig í dag. „Á morgun er áfram útlit fyrir norðlæga átt og vætu en það styttir smám saman upp á sunnanverðu landinu á miðvikudag. Þá kólnar og úrkoman gæti fallið sem slydda eða snjókoma til fjalla norðantil á fimmtudag. Kuldatíðin verður þó ekki löng þar sem aftur er útlit fyrir suðlægar áttir með hlýrri loftmassa um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustan 13-18 m/s norðvestantil á landinu, annars hægari vindur en gengur í suðvestan 13-20 á Suðausturlandi seinnipartinn. Víða rigning, talsverð á annesjum norðanlands og hiti 5 til 10 stig. Á miðvikudag og fimmtudag: Snýst í norðvestan og vestan 8-15 m/s. Hvassast og talsverð rigning eða slydda norðantil en úrkomulítið á sunnan og austanverðu landinu. Hiti 3 til 8 stig, mildast suðaustanlands. Á föstudag: Norðlæg átt með rigningu norðantil en slyddu eða snjókomu til fjalla og 0 til 5 stiga hita, en skýjað með köflum og þurrt sunnanlands og hiti að 8 stigum, mildast suðaustanlands. Á laugardag: Útlit fyrir breytilega átt, 3-8 m/s. Rofar til á norðanveðru landinu og bjart með köflum syðra. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Á sunnudag: Suðaustlæg eða breytileg átt með dálitlum skúrum sunnantil en bjartviðri norðan og austanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Lést í sprengingunni Innlent Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Erlent Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir aftur á kreik Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Skammt stórra högga á milli Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Hvassviðri og talsverð rigning Holtavörðuheiði lokað á miðnætti og tvísýnt um Öxnadalsheiði Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Holtavörðuheiðin opin á ný Bætir í norðaustanáttina að nýju Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Sjá meira