Evrópumeistarinn Parris til liðs við Man United Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. ágúst 2022 17:01 Nikita Parris er nýjasti leikmaður Manchester United. Jonathan Moscrop/Getty Images, Á meðan karlalið félagsins er tilbúið að fá hvern sem er til liðs við sig þá hefur kvennalið Manchester United sótt enska landsliðskonu sem varð Evrópumeistari í sumar.
Um helgina staðfesti Man United komu landsliðskonunnar Nikitu Parris en hún lék síðast með Arsenal. Hún skrifar undir samning til ársins 2024. Hin 28 ára gamla Parris á að baki glæstan feril en ásamt því að leika með Arsenal hefur hún spilað með Everton, Manchester City og Lyon á ferli sínum. Ofan á það má svo bæta við 67 A-landsleikjum. „Það er ótrúlegt að vera hér. Þetta hefur verið ótrúlegt sumar og þetta fullkomnar það endanlega. Manchester United er sögufrægt félag sem er að gera sig gildandi í WLS-deildinni og ég get ekki beðið eftir að vera hluti af liðinu sem og að ná árangri hér í framtíðinni,“ sagði framherjinn við undirskriftina. Introducing summer signing number six... @LilKeets #MUWomen pic.twitter.com/96fv03VKiP— Manchester United Women (@ManUtdWomen) August 6, 2022 „Ég vil hjálpa liðinu að taka skref fram á við og þroskast. Ég er ekki eini leikmaðurinn sem Man Utd sækir í sumar og sýnir það metnað félagsins. Ég er mjög ánægð og get ekki beðið eftir að hefjast handa,“ bætti Parris við. Manchester United endaði í 4. sæti WLS-deildarinnar á síðustu leiktíð og rétt missti af Meistaradeildarsæti. Félagið ætlar sér greinilega að gera betur á komandi leiktíð en alls hefur það sótt sex leikmenn í sumar.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Sjá meira